Til baka í fundargerðir
Grjóthleðsla meðfram fyllingu Kópavogshafnar
Málsnúmer: 1311180
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 104. fundur
Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmda, fór yfir stöðu mála á hleðslu sjóvarnargarðs á fyllingu. Áætlað er að henni ljúki innan 2ja ára.
02
Hafnarstjórn - 101. fundur
Hleðsla hafnarkants á fyllingu. Stefán L. Stefánsson fór yfir framgang verkefnisins. Búið er að hlaða u.þ.b. helming kantsins og er reiknað með að verkinu ljúki á árinu 2017.
03
Hafnarstjórn - 92. fundur
Stefán L. Stefánsson skýrði frá því að þegar væri hafin söfnun á grjóti sem fellur til vegna framkvæmda í Reykjavík, sem hefði umtalsverðan sparnað í för með sér. Verkefnið verður unnið í nokkrum áföngum.
Hafnarstjórn beinir því til umhverfissviðs að kanna stöðu grjótsöfnunar á fyllingu við Ými.