Hafnarstjórn - 73. fundur
í Siglingaklúbbnum Ými Vesturvör
Mætt til fundar
Ritari
- Guðrún Pálsdóttir
Formaður bauð nýjan meðlim hafnarstjórnar, Brynjar Örn Gunnarsson, velkominn og þakkaði Erlendi Geirdal fyrir gott samstarf.
Þá óskaði formaður Siglingafélaginu Ými til hamingju með 40 ára afmælið 4. mars sl.
Dagskrá fundar
Lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 23/3 um kostnaðarskiptingu vegna viðhalds og tilhögun framtíðarmerkinga á Skerjafirði. Siglingastofnun hefur fallist á tillöguna fyrir sitt leyti.

Hafnarstjórn fellst á tillögu sviðsstjóra umhverfissviðs að kostnaðarskiptingu vegna viðhalds og umsýslu sjómerkja á Skerjafirði.

Lögð fram umsókn O.K. Hull ehf. um lóð á hafnarsvæðinu.

Hafnarstjórn lítur jákvætt á erindið.

Hafnarverði falið að kynna sér kostnað við öflun vottunar fyrir Ýmishöfn og leggja fyrir nefndina á næsta fundi hennar.

Aðstaðan við Kópavogshöfn rædd.

Hafnarverði falið að afla upplýsinga fyrir næsta fund.

Hafnarstjórn óskar eftir því að fá aðstoð frá sumarstarfsmönnum í samráði við umhverfissvið, sem sinni einkum hreinsun og merkingum á hafnarsvæðunum.

Ræddir ýmsir möguleikar.

Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gjaldskrá Kópavogshafna verði óbreytt fyrir 2011. Ákvörðun fyrir 2012 verði tekin í nóvember 2011.

Húsnæði Ýmis var skoðað.