Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Hafnarstjórn - 100. fundur

að Bakkabraut 9

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Evert Kristinn Evertsson - aðalfulltrúi
  • Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi

Ritari

  • Ármann Kr. Ólafsson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Ársreikningur Kópavogshafna

Ingólfur Arnarsson, fjármálastjóri, kynnti ársreikning Kópavogshafna.

Athygli vekur að fjármagnskostnaður hefur lækkað umtalsvert milli ára sem skýrist af lægri verðbólgu en áætlun gerði ráð fyrir og lægri vöxtum.

Almenn mál

02

Merkingar á hafnarkantinum.

Bjarki Valberg, umhverfisfulltrúi, sat fundinn og var honum falið að útfæra merkingar við höfnina þar sem bannað verður að hjóla á höfninni. Einnig skýrði hann hugmyndir sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmdar merkingar.

Almenn mál

03

Bláfáninn fyrir smábátahöfnina í Kópavogshöfn.

Bjarki Valberg, umhverfisfulltrúi, fór yfir helstu reglur honum tengdar og hvernig bæri að innleiða hann.

Bjarka falið að gera minnisblað um hugsanlega innleiðingu fánans.

4. Önnur mál.

a) Hafnarstjóra falið að ræða við sviðsstjóra
umhverfissviðs um malbikun á hafnarsvæðinu.
b) Hafnarvörður skýrði frá endurvakningu
smábátafélagsins Kvikunar í Kópavogi sl. laugardag.