Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bláfáninn - Fossvogshöfn

Málsnúmer: 1211189

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 88. fundur

Lagt fram erindi Landverndar varðandi úthlutun Bláfána 2017 og bláfánaafhendingu.

Lagt fram og kynnt.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 76. fundur

Lögð fram niðurstaða frá Blue Flag International vegan Bláfánaumsóknar Fossvogshafnar dags. 10.5.2016.

Lagt fram og kynnt.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur

Lögð fram tillaga að umsókn um Bláfána 2016 fyrir Fossvogshöfn.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrirliggjandi umsókn að Bláfána 2016 fyrir Fossvogshöfn og vísar erindinu ásamt kostnaðarliðum til bæjarráðs.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 65. fundur

Lagt fram minnisblað varðandi afhendingu Bláfána 2015 dags. 12. maí 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.

05

Hafnarstjórn - 100. fundur

Bjarki Valberg, umhverfisfulltrúi, fór yfir helstu reglur honum tengdar og hvernig bæri að innleiða hann.

Bjarka falið að gera minnisblað um hugsanlega innleiðingu fánans.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 56. fundur

Lögð fram niðurstaða Bláfánaeftirlits sumarið 2014 frá Landvernd dags 7.10.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela Umhverfissviði að gera viðeigandi úrbætur sem fyrst.

07

Hafnarstjórn - 91. fundur

Kynning á Bláfánaverkefninu

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 35. fundur

Kópavogsbær hefur fengið grænt ljós á Bláfánann fyrir Fossvogshöfn.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna að viðburði tengdum afhendingu fánans sem verður 6. júní í húsi Siglingafélagsins Ýmis og kynna Bláfánaverkefnið á heimasíðu bæjarins.

09

Hafnarstjórn - 90. fundur

Lagt fram bréf sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 5. mars.$line$Fjallað um lögsögumörk Kópavogshafnar. Hafnarstjórn leggur ríka áherslu á að skýrt sé að Fossvogshöfn falli undir Kópavogshöfn. Lagt til við bæjarráð að hafnarreglugerð verði endurskoðuð með þetta í huga.

10

Umhverfis- og samgöngunefnd - 31. fundur

Umhverfisfulltrúi gerir grein fyrir stöðu málsins.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir staðsetningu fræðsluskiltis fyrir sitt leiti og vísar til hafnarstjórnar til kynningar.

11

Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur

Staða Bláfánaverkefnis er kynnt.

Umhverfisfulltrúi kynnti stöðu málsins.

12

Umhverfis- og samgöngunefnd - 27. fundur

Lögð fram gögn verkefnastjóra Landverndar, sem send voru umhverfissviði 13. nóvember 2012. Í gögnum koma fram upplýsingar um skilyrði Bláfánans, upplýsingaskilti og umsóknareyðublöð. "Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leiti að umhverfissvið vinni áfram að því að heimild fáist til að flagga Bláfánanum við Ýmishöfn."