Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Hafnarstjórn - 128. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Magnússon - formaður
  • Ásdís Kristjánsdóttir - hafnarstjóri
  • Jóhannes Júlíus Hafstein - aðalmaður
  • Bergur Þorri Benjamínsson - aðalmaður
  • Steini Þorvaldsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigurður M Grétarsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Eva Sjöfn Helgadóttir - aðalmaður
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Atli Hermannsson - hafnarvörður
  • Birkir Rútsson - deildarstjóri gatnadeildar

Ritari

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Hafnarreglugerð

Almenn mál

02

Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3 og Þinghólsbraut 77 og 79. Breytt deiliskipulag.

Frá skipulagsfulltrúa, dags. 9. desember 2022, lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulaginu Kársneshöfn fyrir lóðirnar nr. 2-4 við Bakkabraut, 1-3 við Bryggjuvör og 77 og 79 við Þinghólsbraut. Í breytingunni felst að núverandi atvinnuhúsnæði á lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess stað. Skipulagssvæðið afmarkast af Þinghólsbraut og lóðamörkum Þinghólsbrautar 73 og 75 í austri, fyrirhugaðri nýrri vegtengingu milli Borgarholtsbrautar og Bakkabrautar í norðri, fyrirhugaðs nýs hafnarkants til vesturs og suðurs. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða á reitnum verði að hámarki 150, á 2-4 hæðum þar sem 4. hæðin verður inndregin. Gert er ráð fyrir 0,75-1 bílastæði pr. íbúð, 0.2 fyrir gestastæði og að u.þ.b. 90% þeirra verði í innbyggðum og niðurgröfnum bílageymslum. Fyrirhugað er að heildarbyggingarmagn á svæðinu verði 24.995 m² ofan- og neðanjarðar með nýtingarhlutfalli 1,81. A-rými ofanjarðar 18.810m². B-rými ofanjarðar 2.385m². A-rými neðanjarðar 1.980m². B-rými neðanjarðar - Bílakjallari - 3.800m². Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 30. mars 2022 og breytt 7. desember 2022. Tillögunni fylgir minnisblað um samgöngur frá VSÓ ráðgjöf dags. 17. febrúar 2021 og uppfært 7. desember 2022, minnisblað um umhverfisáhrif frá Mannviti uppfært 1. desember 2022, áhættumat vegna loftslagsbreytinga dags. 27. apríl 2022 og húsakönnun dags. 1. desember 2022.

"Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 13 þar sem skörun við skilgreint hafnarsvæði er óveruleg og mun ekki hafa áhrif á skipulag og nýtingu hafnarsvæðisins".

Samþykkt með fjórum atkvæðum og hjásetu Evu Sjafnar Helgadóttur.

Bókun:

"Undirrituð er samþykk afgreiðslu hafnarstjórnar".

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Bókun:

"Hafnarstjórn hefur það hlutverk að gæta hagsmuna hafnarinnar. Íbúðabyggð sem rýrir möguleika á að nýta sérstöðu hafnarsvæðisins fyrir alla þá sem þarfnast og geta nýtt sérstöðu hafnarsvæðisins fer gegn hagsmunum Kópavogshafnar og Kópavogsbæjar.

Það eru ekki bara smábátar og seglskútur sem þurfa athafnarými við höfn, heldur þarf að gæta þess að ferðaþjónusta og mannlíf hafi rými til framþróunar. Illskiljanlegt er að fórna því rými áður en frekari athugun á þróunarmöguleiku hefur farið fram af hálfu hafnarstjórnar og skipulagsyfirvalda."

Jóhann Már Sigurbjörnsson, fulltrúi Vina Kópavogs.


Fundarhlé hófst kl. 13.38, fundi fram haldið kl. 13:51.


Bókun:

"Deiliskipulag er í gildi fyrir höfnina. Í gildandi skipulagi norðan og austan við höfnina er gert ráð fyrir að þar séu léttar byggingar, fjölbreytt verslun og þjónusta sem meðal annars er hugsað að tengist ferðaþjónustu. Skipulagssvæði umræddrar skipulagsbreytingar er í beinum tengslum við smábátahöfnina, ekki fæst séð að breytingin rýri notkun hafnarinnar heldur er gert ráð fyrir að aðgengi verði bætt.

Jón Guðlaugur Magnússon

Ásdís Kristjánsdóttir

Jóhannes Júlíus Hafstein

Bergur Þorri Benjamínsson

Sigurður M. Grétarsson



Almenn mál

03

Gjaldskrá Kópavogshafnar 2023

Bæjarráð vísaði þann 20.10.2022, gjaldskrá Kópavogshafnar 2023 til nýrrar efnismeðferðar hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn vísar erindinu til frekari rýni sviðsstjóra umhverfissviðs, bæjarritara og varafomanns hafnarstjórnar.

Almenn mál

04

Fjárhagsáætlun 2023

Ingólfur Arnason gerir grein fyrir áætluninni.

Kynnt.

Almenn mál

05

Erindi frá hafnarverði Kópavogshafnar

Frá hafnarverði, dags. 06.12.2022, lagt fram minnsiblað.

Lagt fram.

Almenn mál

06

Gámar á og við Kópavogshöfn

Deildarstjóri gatnadeildar kynnir.

Umræður.