Hafnarstjórn - 112. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Kristján Friðþjófsson - aðalmaður
- Kristín Bára Alfreðsdóttir - aðalmaður
- Jón Magnússon - aðalmaður
- Tómas Þór Tómasson - aðalmaður
- Friðrik Fraser - aðalmaður
- Ármann Kristinn Ólafsson
Starfsmenn
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir
Dagskrá fundar
Ingólfur Arnason fjármálastjóri Kópavogsbæjar gerir grein fyrir áætluninni.
Fjárhagsáætlun Kópavogshafnar borin upp og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Gestir
- Ingólfur Arnarson fjármálastjóri Kópavogsbæjar - mæting: 16:30
Yfirgefinn bátur við hafnarfyllingu.
Báturinn verður fjarlægður um mánaðarmótin nóvember/desember.
Farg á lóðinni Bakkabraut 9.
Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að farið verði í framkvæmdir hið fyrsta svo öryggi á svæðinu sé tryggt.
Losun bygginga- og jarðvegsúrgangs vestan Vesturvarar 32 og 36.
Samþykkt að setja upp færanlega girðingu á svæðinu.
Gámar á hafnarsvæði.
Samþykkt að fela umhverfissviði að fara yfir stöðuleyfi á hafnarsvæðinu.
Gestir
- Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar - mæting: 17:00
Lögð fram drög að starfslýsingu eftirlitsmanns hafnarsvæðis.
Framlögð drög að starfslýsingu eftirlitsmanns hafnarsvæðis samþykkt.
Jafnframt samþykkt að auglýsa starfið og hafa umsóknarfrest til 15. desember.