Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ýmis mál í hafnarstjórn

Málsnúmer: 1805259

Ferill máls

01

Hafnarstjórn - 115. fundur

Vettvangsferð um hafnarsvæðið.

Hafnarstjórn fór og kynnti sér ástand hafnarinnar og svæðisins undir leiðsögn hafnarvarðar.

02

Hafnarstjórn - 114. fundur

a) Lagt fram erindi frá hafnarverði, dags. 08.05.2020.

b) Ármann Kr. Ólafsson sagði frá hreinsunarátaki sem framundan er á hafnarsvæði og nágrenni.

03

Hafnarstjórn - 113. fundur

1) Ráðning hafnarvarðar.

2) Verkefni framundan.

1) Hafnarstjóri gerði grein fyrir ráðningu hafnarvarðar. Atli Hermannsson var ráðinn hafnarvörður og var hann boðinn velkominn til starfa af hafnarstjórn.

2) Lagður fram listi frá hafnarstjórn yfir verkefni sem þarf að sinna við Kópavogshöfn. Vísað til hafnarvarðar.

04

Hafnarstjórn - 112. fundur

Yfirgefinn bátur við hafnarfyllingu.

Báturinn verður fjarlægður um mánaðarmótin nóvember/desember.

Farg á lóðinni Bakkabraut 9.

Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að farið verði í framkvæmdir hið fyrsta svo öryggi á svæðinu sé tryggt.

Losun bygginga- og jarðvegsúrgangs vestan Vesturvarar 32 og 36.

Samþykkt að setja upp færanlega girðingu á svæðinu.

Gámar á hafnarsvæði.

Samþykkt að fela umhverfissviði að fara yfir stöðuleyfi á hafnarsvæðinu.

05

Hafnarstjórn - 110. fundur

Smári Smárason aðstoðarskipulagsstjóri kynnir skipulagsmál á hafnarsvæðinu.

06

Hafnarstjórn - 109. fundur

Skipulagsstjóri mun koma á fundinn og kynna framkvæmdir á hafnarsvæðinu

Birgir H. Sigurðsson, skipulagsstjóri kynnti yfirstandandi framkvæmdir og breytingar á skipulagi á hafnarsvæðinu og næsta nágrenni. Einnig kynnti hann þéttingarsvæðin í bænum.

07

Hafnarstjórn - 108. fundur

Farið yfir framvkæmdir og skipulag á hafnarsvæðinu og vestanverðu Kársnesi.

4. Gera þarf átak í að fjarlægja gáma, vélar og rusl á hafnarsvæðinu sbr. fyrri samþykkt.