Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Hafnarstjórn - 123. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Magnússon - formaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Kristján Friðþjófsson - aðalmaður
  • Kristín Bára Alfreðsdóttir - aðalmaður
  • Tómas Þór Tómasson - aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason - varafulltrúi

Starfsmenn

  • Atli Hermannsson
  • Birkir Rútsson

Ritari

  • Birkir Rútsson

Dagskrá fundar

01

Kópavogshöfn. Ferðaþjónustutengd aðstaða

Frá deildarstjóra gatnadeildar, lögð fram tillaga um mögulega útfærslu á flotbryggjum í höfninni.

Hafnarstjórn samþykkir kaup á flotbryggju og landgangi sem staðsettur verður við Norðurkant með þarfir ferðaþjónustu og annarra gesta í huga. Hafnarstjóra falið frekari úrvinnsla verkefnisins.

02

Kópavogshöfn. Eldsneytisafgreiðsla báta

Lögð fram tillaga um útfærslu á eldsneytisafgreiðslu til báta.

Hafnarstjórn samþykkir kaup á flotbryggju fyrir eldsneytisafgreiðslu sem staðsett verður við gömlu bryggjuna.

03

Kópavogshöfn. Þyppur á hafnarkanta

Lögð fram tillaga um endurbætur á þyppum (fendurum) við hafnarkannta.

Hafnarstjórn samþykkir að hafið verði að endurnýja þyppur (fendera) á bryggjum. Verkefnið verður áfangaskipt og byrjað á Norðurkantinum.

Hafnarverði falið frekari útfærsla á verkinu og kynna fyrir hafnarstjórn.

04

Lýðheilsustefna 2022-2025

Frá verkefnstjóra lýðheilsumála, lögð fram drög að endurskoðaðri lýðheilsustefnu til umsagnar hafnarstjórnar.

Lagt fram og kynnt.

05

Önnur mál - hafnarstjórn