Til baka í fundargerðir
Kópavogshöfn. Ferðaþjónustutengd aðstaða
Málsnúmer: 2110791
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 123. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, lögð fram tillaga um mögulega útfærslu á flotbryggjum í höfninni.
Hafnarstjórn samþykkir kaup á flotbryggju og landgangi sem staðsettur verður við Norðurkant með þarfir ferðaþjónustu og annarra gesta í huga. Hafnarstjóra falið frekari úrvinnsla verkefnisins.
02
Hafnarstjórn - 122. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 26. október 2021, lögð fram möguleg útfærsla á hvernig hægt væri að koma fyrir ferðaþjónustutengdri aðstöðu við Kópavogshöfn sem samanstendur af flotbryggju/m, söluaðstöðu fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, stígum og aðstöðu fyrir bíla. Útfærslan er byggð á núverandi gildandi deiliskipulagi.
Birkir Rútsson kynnir.