Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Innkaupanefnd - 15. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sveinn Gíslason - formaður
  • Sigvaldi Egill Lárusson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigvaldi Egill Lárusson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Hjalti Jón Pálsson - starfsmaður nefndar
  • Steinn Sigríðar Finnbogason - lögfræðingur
  • Loftur Steinar Loftsson - Þjónustustjóri

Ritari

  • Katrín Arnórsdóttir

Dagskrá fundar

01

Útboð - Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 12.03.2026, er lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu útboðs nr. 26022658: Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar. Lagt fram til ákvörðunar.

Innkaupanefnd samþykkir erindi frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 12.03.2026, þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu útboðs nr. 26022658: Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar. Samþykkt er að heimila auglýsingu útboðs nr. 26022658: Naustavör 13 - Stígagerð og lagnir utan lóðar.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir víkur af fundi kl. 15:51

Gestur víkur af fundi kl. 15:53.

02

Örútboð - Borð- og fartölvur

Frá innkaupadeild dags. 12.04.2026, lagt fram erindi þar sem upplýst er um örútboð sem sent hefur verið til birgja í rammasamningi Fjársýslunnar, Tölvur fyrir Kópavogsbæ. Lagt fram til upplýsinga.

Lagt er fram erindi frá innkaupadeild þar sem upplýst er um örútboð sem sent hefur verið til birgja í rammasamningi Fjársýslunnar, Tölvur fyrir Kópavogsbæ. Lagt fram til upplýsinga.

Umræður.

03

Fundartímar innkaupanefndar 2026

Tillaga að breyttri fundaráætlun innkaupanefndar.

Vegna verkefnastöðu umhverfissviðs er talið að of langur tími sé á milli funda frá 16. mars til 20. apríl, þ.a.l. er lagt til að fundur verði settur á dagskrá 13. apríl.

Lögð er fram tillaga að breyttri fundaráætlun innkaupanefndar.

Vegna verkefnastöðu umhverfissviðs er talið að of langur tími sé á milli funda frá 16. mars til 20. apríl, þ.a.l. er lagt til að sá fundur verði færður til 13. apríl.

Samþykkt.

04

Skilamat framkvæmdadeildar - upplýsingar fyrir innkaupanefnd

Kynnt er fyrirkomulag á eftirlitsskýrslum vegna framkvæmdaverkefna.

Kynnt er fyrirkomulag á árshlutaskýrslum vegna framkvæmdaverkefna og hvernig þær verði kynntar fyrir innkaupanefnd.

Nefndarfólk gerir ekki athugasemdir við þetta fyrirkomulag.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir kemur aftur á fund kl. 16:09.

05

Verkefnalisti innkaupadeildar og upplýsingar um innkaup fyrir innkaupanefnd 2026

Lagður er fram listi yfir verkefni sem eru í vinnslu hjá innkaupadeild. Lagt fram til upplýsinga.

Lagður er fram listi yfir verkefni sem eru í vinnslu hjá innkaupadeild. Lagt fram til upplýsinga. Umræður.

06

Greiningar innkaupa fyrir innkaupanefnd

Óskað var eftir því, í upphafi fundar, að fjallað yrði um stöðu á Power BI skýrslu og hvort vitað sé hvenær hún liggi fyrir.

Það var samþykkt og dagskrárlið bætt við, til umræðu.

Fjallað er um stöðu á skýrslu sem unnin var upp úr Power BI skýrslu og ætlunin var að leggja fyrir innkaupanefndina í desember sl.

Verið er að skoða hvernig hægt er að setja skýrsluna fram þannig að gögnin í henni séu örugglega rétt.

Nefndin leggur áherslu á að mikilvægt sé að fá þessar upplýsingar og að þær séu réttar.