Greiningar innkaupa fyrir innkaupanefnd
Málsnúmer: 25101775
Ferill máls
01
Innkaupanefnd - 15. fundur
Óskað var eftir því, í upphafi fundar, að fjallað yrði um stöðu á Power BI skýrslu og hvort vitað sé hvenær hún liggi fyrir.
Það var samþykkt og dagskrárlið bætt við, til umræðu.
Fjallað er um stöðu á skýrslu sem unnin var upp úr Power BI skýrslu og ætlunin var að leggja fyrir innkaupanefndina í desember sl.
Verið er að skoða hvernig hægt er að setja skýrsluna fram þannig að gögnin í henni séu örugglega rétt.
Nefndin leggur áherslu á að mikilvægt sé að fá þessar upplýsingar og að þær séu réttar.
02
Innkaupanefnd - 11. fundur
Lögð er fram skýrsla sem unnin er upp úr Power BI skýrslu sem sett hefur verið upp til að sækja gögn fyrir innkaupanefnd.
Málinu frestað til næsta fundar.
03
Innkaupanefnd - 10. fundur
Lagðar eru fram upplýsingar úr Power BI skýrslu sem verið er að setja upp fyrir innkaupanefndina. Lagt fram til upplýsinga.
Lagðar eru fram upplýsingar úr Power BI skýrslu sem verið er að setja upp fyrir innkaupanefndina.
Power BI skýrslan sem verið er að setja upp er sýnd og skoðað hvað skýrslan hefur upp á að bjóða.
04
Innkaupanefnd - 8. fundur
Lagðar eru fram upplýsingar um greiningar innkaupa fyrir innkaupanefnd.
Lagt fram.