Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Innkaupanefnd - 5. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sveinn Gíslason - formaður
  • Sigvaldi Egill Lárusson - aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Jóhann Már Sigurbjörnsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Elvar Bjarki Helgason - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Pálmi Másson

Dagskrá fundar

01

Útboð - Geislagarður

Óskað er eftir heimild til útboðs á endurgerð á Geislagarði í Hamraborg. Lagt fram til ákvörðunar.

Innkaupanefnd samþykkir með fimm atkvæðum heimild til útboðs í samræmi við fyrirliggjandi gögn.


Gestur vék af fundi kl. 15:43

02

Minnisblað vegna innkaupa á launa- og mannauðskerfi.

Minnisblað kaupanda vegna innkaupa á launa- og mannauðskerfi lagt fram til umræðu og upplýsinga.

Fundarhlé hófst kl. 16:42, fundi fram haldið kl. 16:50

Tillaga:

Innkaupanefnd samþykkir að kalla eftir viðbrögðum deildarstjóra innkaupadeildar við skýringum mannauðsstjóra og óska eftir tillögum að leiðum til úrbóta.

Greinargerð:

Samkvæmt erindisbréfi á innkaupanefnd að hafa eftirlit með að innkaupareglum bæjarfélagsins sé fylgt og afgreiða ábendingar sem berast vegna opinberra innkaupa og gera tillögu til bæjarráðs að úrbótum sé tilefni til.

Hafnað með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Jóhanns Más Sigurbjörnssonar.


Innkaupanefnd áréttar mikilvægi þess að verkkaupar hagi innkaupum ætíð í samráði við innkaupadeild. Innkaupanefnd átelur að ekki hafi verið farið í útboð á seinni hluta árs 2023, þegar fyrir lá að þjónusta við þáverandi launakerfi yrði hætt. Innkaupanefnd leggur eindregið til að farið verði sem allra fyrst í útboð á launa- og mannauðskerfi, þannig að unnt sé að taka nýtt kerfi í notkun samhliða því þegar núverandi þriggja ára samningi lýkur.

03

Stjórnskipulag og nýtt skipurit Kópavogsbæjar 1. mars 2025

Nýtt skipurit Kópavogsbæjar lagt fram til kynningar og umræðu, ásamt hlutverki nefndarinnar í heildinni.

Kynning og umræður.