Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Minnisblað vegna innkaupa á launa- og mannauðskerfi.

Málsnúmer: 25051863

Ferill máls

01

Innkaupanefnd - 5. fundur

Minnisblað kaupanda vegna innkaupa á launa- og mannauðskerfi lagt fram til umræðu og upplýsinga.

Fundarhlé hófst kl. 16:42, fundi fram haldið kl. 16:50

Tillaga:

Innkaupanefnd samþykkir að kalla eftir viðbrögðum deildarstjóra innkaupadeildar við skýringum mannauðsstjóra og óska eftir tillögum að leiðum til úrbóta.

Greinargerð:

Samkvæmt erindisbréfi á innkaupanefnd að hafa eftirlit með að innkaupareglum bæjarfélagsins sé fylgt og afgreiða ábendingar sem berast vegna opinberra innkaupa og gera tillögu til bæjarráðs að úrbótum sé tilefni til.

Hafnað með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Jóhanns Más Sigurbjörnssonar.


Innkaupanefnd áréttar mikilvægi þess að verkkaupar hagi innkaupum ætíð í samráði við innkaupadeild. Innkaupanefnd átelur að ekki hafi verið farið í útboð á seinni hluta árs 2023, þegar fyrir lá að þjónusta við þáverandi launakerfi yrði hætt. Innkaupanefnd leggur eindregið til að farið verði sem allra fyrst í útboð á launa- og mannauðskerfi, þannig að unnt sé að taka nýtt kerfi í notkun samhliða því þegar núverandi þriggja ára samningi lýkur.