Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Innkaupanefnd - 20. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðmundur Jóhann Jónsson - formaður
  • Ragna Klara Magnúsdóttir - aðalfulltrúi
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalfulltrúi
  • Orri Thor Eggertsson - aðalfulltrúi
  • Elvar Bjarki Helgason - aðalfulltrúi
  • Trausti Örn Þórðarson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Hjalti Jón Pálsson - starfsmaður nefndar
  • Steinn Sigríðar Finnbogason - lögfræðingur
  • Loftur Steinar Loftsson - Þjónustustjóri

Ritari

  • Katrín Arnórsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Rammasamningur um ræstingar hjá Kópavogsbæ

Frá innkaupadeild, dags. 25.09.2026 er lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til útboðs á rammasamningi um ræstinguar hjá Kópavogsbæ. Lagt fram til ákvörðunar.

Frá innkaupadeild, dags. 25.09.2026 er lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til útboðs á rammasamningi um ræstinguar hjá Kópavogsbæ. Samþykkt er að veita heimild til útboðs á rammasamningi á ræstingu hjá Kópavogsbæ.

Almenn mál

02

Kæra Ístaks hf. vegna útboðs Kópavogsbæjar nr.2402380

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 25.09.2026 er lagt fram erindi þar sem upplýst er um úrskurð kærunefndar í kæru nr. 22/2026 í útboði nr. 2402380 - hönnun og bygging knattspyrnuleikvangs fyrir Kórinn. Lagt fram til upplýsinga.

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 25.09.2026 er lagt fram erindi þar sem upplýst er um úrskurð kærunefndar í kæru nr. 22/2026 í útboði nr. 2402380 - hönnun og bygging knattspyrnuleikvangs fyrir Kórinn. Lagt fram til upplýsinga.

Kynning og umræður.

Bókun:

"Fulltrúi Samfylkingar telur niðurstöðu kærunefndar útboðsmála í máli nr. 22/2026, sem varðar verulega misbresti í útboði á nýrri knattspyrnustúku HK, alvarlega. Mikilvægt er að Kópavogsbær og innkaupanefnd dragi skýran lærdóm af henni. Kærunefnd felldi úr gildi ákvörðun Kópavogsbæjar um val á tilboði og taldi annmarka hafa verið á gagnsæi og rökstuðningi við mat tilboða. Jafnframt viðurkenndi kærunefndin skaðabótaskyldu Kópavogsbæjar í þessu máli.

Opinber innkaup af þessari stærðargráðu verða að standast ríkar kröfur um gagnsæi og jafnræði. Þegar huglægt mat sérfræðinga hefur veruleg áhrif á niðurstöðu skiptir það sérstaklega máli að forsendur einkunnagjafar séu skýrar og að breytingar á mati milli umferða séu studdar fullnægjandi rökum. Málið ber þess skýrlega merki að vönduð vinnubrögð viku fyrir pólitískum metnaði í aðdraganda kosninga.

Undirritaður kallar eftir því að innkaupanefnd fái upplýsingar um hvaða breytingar hafa verið eða verði gerðar á verklagi Kópavogsbæjar til að koma í veg fyrir sambærilega misbresti. Jafnframt verði nefndinni gerð grein fyrir næstu skrefum í innkaupaferlinu og mögulegum fjárhagslegum áhrifum úrskurðarins á Kópavogsbæ."

Orri Thor Eggertsson

Fundarhlé hófst kl. 16:30, fundi fram haldið kl. 16:53.

Bókun:

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Innkaupanefnd Kópavogsbæjar tekur undir þau sjónarmið að ávallt sé mikilvægt að Kópavogsbær og Innkaupanefnd dragi lærdóm af úrskurði kærunefndar. Öll opinber innkaup verða að standast ríkar kröfur um gagnsæi og jafnræði óháð stærðargráðu.

Við andmælum því að ekki hafi verið unnið að fullum heilindum að hálfu allra sem að málinu komu og á það við starfsfólk Kópavogsbæjar, Innkaupanefnd sem og óháðir matsmenn.

Komið hefur fram að tryggt verði gagnsæi í allri upplýsingagjöf varðandi framhald málsins.

Svava Friðgeirsdóttir

Ragna Klara Magnúsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson

Fulltrúi Viðreisnar tekur undir bókun Samfylkingar.

Almenn mál

03

Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi eftirlitshlutverk innkaupanefndar

Erindi frá Elvari Bjarka Helgasyni, dags. 17.09.2026, þar sem óskað er eftir umfjöllun um eftirlitshlutverk innkaupanefndar, með vísan til 11. gr. erindisbréfs nefndarinnar. Lagt fram til umræðu.

Erindi frá Elvari Bjarka Helgasyni, dags. 17.09.2026, þar sem óskað er eftir umfjöllun um eftirlitshlutverk innkaupanefndar, með vísan til 11. gr. erindisbréfs nefndarinnar.

Lagt fram til umræðu.

Umræður.

Almenn mál

04

Verkefnalisti innkaupadeildar og upplýsingar um innkaup fyrir innkaupanefnd 2026

Frá innkaupadeild, dags. 25.09.2026 er lagður fram verkefnalisti deildarinnar. Lagt fram til upplýsinga.

Frá innkaupadeild, dags. 25.09.2026 er lagður fram verkefnalisti deildarinnar. Lagt fram til upplýsinga.

Umræður