Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kæra Ístaks hf. vegna útboðs Kópavogsbæjar nr.2402380

Málsnúmer: 26043114

Ferill máls

01

Innkaupanefnd - 20. fundur

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 25.09.2026 er lagt fram erindi þar sem upplýst er um úrskurð kærunefndar í kæru nr. 22/2026 í útboði nr. 2402380 - hönnun og bygging knattspyrnuleikvangs fyrir Kórinn. Lagt fram til upplýsinga.

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 25.09.2026 er lagt fram erindi þar sem upplýst er um úrskurð kærunefndar í kæru nr. 22/2026 í útboði nr. 2402380 - hönnun og bygging knattspyrnuleikvangs fyrir Kórinn. Lagt fram til upplýsinga.

Kynning og umræður.

Bókun:

"Fulltrúi Samfylkingar telur niðurstöðu kærunefndar útboðsmála í máli nr. 22/2026, sem varðar verulega misbresti í útboði á nýrri knattspyrnustúku HK, alvarlega. Mikilvægt er að Kópavogsbær og innkaupanefnd dragi skýran lærdóm af henni. Kærunefnd felldi úr gildi ákvörðun Kópavogsbæjar um val á tilboði og taldi annmarka hafa verið á gagnsæi og rökstuðningi við mat tilboða. Jafnframt viðurkenndi kærunefndin skaðabótaskyldu Kópavogsbæjar í þessu máli.

Opinber innkaup af þessari stærðargráðu verða að standast ríkar kröfur um gagnsæi og jafnræði. Þegar huglægt mat sérfræðinga hefur veruleg áhrif á niðurstöðu skiptir það sérstaklega máli að forsendur einkunnagjafar séu skýrar og að breytingar á mati milli umferða séu studdar fullnægjandi rökum. Málið ber þess skýrlega merki að vönduð vinnubrögð viku fyrir pólitískum metnaði í aðdraganda kosninga.

Undirritaður kallar eftir því að innkaupanefnd fái upplýsingar um hvaða breytingar hafa verið eða verði gerðar á verklagi Kópavogsbæjar til að koma í veg fyrir sambærilega misbresti. Jafnframt verði nefndinni gerð grein fyrir næstu skrefum í innkaupaferlinu og mögulegum fjárhagslegum áhrifum úrskurðarins á Kópavogsbæ."

Orri Thor Eggertsson

Fundarhlé hófst kl. 16:30, fundi fram haldið kl. 16:53.

Bókun:

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Innkaupanefnd Kópavogsbæjar tekur undir þau sjónarmið að ávallt sé mikilvægt að Kópavogsbær og Innkaupanefnd dragi lærdóm af úrskurði kærunefndar. Öll opinber innkaup verða að standast ríkar kröfur um gagnsæi og jafnræði óháð stærðargráðu.

Við andmælum því að ekki hafi verið unnið að fullum heilindum að hálfu allra sem að málinu komu og á það við starfsfólk Kópavogsbæjar, Innkaupanefnd sem og óháðir matsmenn.

Komið hefur fram að tryggt verði gagnsæi í allri upplýsingagjöf varðandi framhald málsins.

Svava Friðgeirsdóttir

Ragna Klara Magnúsdóttir

Guðmundur Jóhann Jónsson

Fulltrúi Viðreisnar tekur undir bókun Samfylkingar.

02

Bæjarráð - 3255. fundur

Lögð fram kæra Ístaks vegna ákvörðunar Kópavogsbæjar að velja tilboð ÞG verktaka í útboði nr. 2402380 - hönnun og bygging knattspyrnuleikvangs fyrir Kórinn.

Lagt fram.

Umræður.

03

Innkaupanefnd - 17. fundur

Frá lögfræðiþjónustu dags. 30.04.2026, lagt fram erindi þar sem upplýst er um kæru nr. 22/2026 sem barst frá kærunefnd útboðsmála 27.04.2026. Lagt fram til upplýsinga.

Frá lögfræðiþjónustu dags. 30.04.2026, lagt fram erindi þar sem upplýst er um kæru nr. 22/2026 sem barst frá kærunefnd útboðsmála 27.04.2026.

Umræður.