Íþróttaráð - 38. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Valdimar F Valdimarsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Lovísa Ólafsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigursteinn Óskarsson - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
- Magnús Jakobsson - varafulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Áður en gengið var til dagskrár fór fram stutt kynning þar sem fulltrúar ráðsins greindu frá hver þau væru og hvaðan þau kæmu.$line$
Skipað í embætti samkvæmt 2. grein í erindisbréfi fyrir Íþróttaráð Kópavogs.
Lagt er til að formaður ráðsins verði Jón Finnbogason, varaformaður Sigursteinn Óskarsson og ritari Lovísa Ólafsdóttir.$line$Samþykkt.
Kynning á starfsemi íþróttadeildar og Menntasviði Kópavogsbæjar.
Sviðsstjóri Menntasviðs kynnir starf og umfang sviðsins, jafnframt því sem deildarstjóri íþróttadeildar fór yfir helstu verkefni og þær stofnanir sem undir deildina heyra.
Erindisbréf fyrir Íþróttaráð Kópavogs lagt fram til kynningar.
Sviðsstjóri Menntasviðs ásamt deildarstjóra íþróttadeildar gerðu í stuttu máli grein fyrir helstu ákvæðum erindisbréfsins.
Starfsmenn íþróttadeildar lögðu fram til kynningar æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar fyrir komandi vetur. Töflurnar eru að mestu þær sömu og kynntar voru á fundi íþróttaráðs þann 3. júní sl. Þó var reynt að taka tillit til innsendra óska íþróttfélaganna um aukningu tíma og breytingar frá þeim.$line$Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Umræður urðu um hvaða daga og hvenær dags væri heppilegast að funda í ráðinu.
Ákvörðun frestað til næsta fundar.