Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tímatöflur íþróttamannvirkja Kópavogs - veturinn 2014-2015

Málsnúmer: 1405331

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2740. fundur

$line$Á fundi íþróttaráðs þann 21.ágúst sl., voru lagðar fram tillögur íþróttadeildar að tímatöflum veturinn 2014/2015 fyrir íþróttamannvirki bæjarins og sérstakar óskir frá íþróttafélögunum lagðar fram.$line$$line$$line$Eftirfarandi bókun var gerð:$line$$line$Íþróttaráð samþykkir framlagðar tímatöflur. Íþróttaráð leggur áherslu á að starfsmenn íþróttadeildar fylgist vel með nýtingu tíma í þeim mannvirkjum sem hér um ræðir og grípi til viðeigandi ráðstafana ef nýting er ekki fullnægjandi.$line$$line$

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþróttaráðs á tímatöflum 2014 - 2015 og samþykkir fjárskuldbindingar vegna þeirra. Jafnframt áréttar bæjarráð að unnið verði skv. samþykktri hverfaskiptingu í knattspyrnu og HK hverfi með nýliðun í knattspyrnu í Fagralundi en Breiðablik sinni þeirri þjónustu í samræmi við samninga félaganna við Kópavogsbæ.

02

Íþróttaráð - 39. fundur

Lagðar fram tillögur íþróttadeildar að tímatöflum veturinn 2014/2015 fyrir íþróttamannvirki bæjarins. Lagt fram bréf frá aðalstjórn HK, þar sem lýst er stuðningi við tillögurnar í meginatriðum. Þó óskar félagið eftir að fá leigða tíma í Digranesi (4) og Kórnum (2) undir starfsemi sína ásamt því að fá fleiri tíma í Kársnesi fyrir barna- og unglingastarf handboltans. Jafnframt lagt fram afrit tölvupósts frá frk.st. aðalstjórnar Breiðabliks þar sem hann lýsir vilja félagsins til þess að rammi framlagðra tímataflna gangi upp en ítrekar þó þá kröfu félagins að fá amk. einn tíma í upphafi vikunnar milli 17-18 í Digranesi. Í framlögðu erindi frá Gerplu kemur m.a. fram að félagið hefur þurft að leigja tíma í Garðabæ, Reykjavík, Reykjanesbæ og Mosfellsbæ á síðasta ári.

Íþróttaráð samþykkir framlagðar tímatöflur. Íþróttaráð leggur áherslu á að starfsmenn íþróttadeildar fylgist vel með nýtingu tíma í þeim mannvirkjum sem hér um ræðir og grípi til viðeigandi ráðstafana ef nýting er ekki fullnægjandi.

03

Íþróttaráð - 38. fundur

Starfsmenn íþróttadeildar lögðu fram til kynningar æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar fyrir komandi vetur. Töflurnar eru að mestu þær sömu og kynntar voru á fundi íþróttaráðs þann 3. júní sl. Þó var reynt að taka tillit til innsendra óska íþróttfélaganna um aukningu tíma og breytingar frá þeim.$line$Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

04

Bæjarstjórn - 1098. fundur

Lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja í Kópavogi frá 2013. Gert er ráð fyrir að þær verði óbreyttar milli ára. Formenn knattspyrnudeilda Breiðabliks og HK óskuðu eftir breytingum og lagt er til að komið verði til móts við óskir þeirra frá haustinu 2014. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að afgreiðslu málsins væri frestað.Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ármanns Kr. Ólafsson með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæðum.

05

Bæjarráð - 2734. fundur

Lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja í Kópavogi frá 2013. Gert er ráð fyrir að þær verði óbreyttar milli ára. Formenn knattspyrnudeilda Breiðabliks og HK óskuðu eftir breytingum og lagt er til að komið verði til móts við óskir þeirra frá haustinu 2014.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirrituð gerir ráð fyrir löngum umræðum og hápólitískum að vanda.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>

06

Íþróttaráð - 37. fundur

Lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar frá sl. vetri. Jafnframt lögð fram ósk formanna knattspyrnudeilda HK og Breiðabliks varðandi aukinn æfingatíma í knatthúsum bæjarins milli 20 og 21 virka daga vikunnar á komandi vetri.

Að öllu jöfnu er því reiknað með því að tímatöflur verði óbreyttar milli ára. Fyrir liggur frá því í mars sl., formleg ósk um breytingar á æfingatöflum íþróttafélaganna í íþróttahúsum bæjarins frá formönnum knattspyrnudeilda Breiðabliks og HK. Varðandi ósk knattspyrnudeildanna þá var, við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014, gert ráð fyrir tekjum af útleigu á umræddum tímum. Íþróttaráð mælir með því við bæjarráð að reynt verði að koma til móts við óskir deildanna frá haustinu 2014.

07

Íþróttaráð - 36. fundur

Rætt um tímatöflur í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar fyrir næsta vetur. Starfsmönnum falið að kynna tillögur að tímatöflum fyrir mannvirkin á næsta fundi að höfðu samráði við íþróttafélögin og að teknu tilliti til ramma fjárhagsáætlunar.