Íþróttaráð - 66. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Lovísa Ólafsdóttir - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Magnús Jakobsson - aðalfulltrúi
- Rannveig Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Íþróttaráð samþykkti fyrr á árinu að gefa bæjarbúum tækifæri til að taka beinan þátt í kjöri á íþróttakonu og íþróttakarls Kópavogs með vefrænni kosningu.
Vefkosningin fer fram frá 21. - 31. desember nk. og verða niðurstöður hennar kunngerðar á Íþróttahátíð Kópavogs 2016.
Íþróttaráð samþykkti á síðasta fundi ráðsins að Íþróttahátíð Kópavogs 2016 verði haldin í samvinnu við Gerplu í Íþróttamiðstöðinni í Versölum laugardaginn 7. janúar kl. 17:00.
Er hér var komið á fundinum boðaði Matthías Imsland forföll á fundinn vegna anna í fjárlaganefnd Alþingis.
Deildarstjóri gerði grein fyrir þeim tilnefningum sem borist hafa frá íþróttafélögum í Kópavogi á fulltrúum til að taka sæti í starfsstjórn SÍK fram að fyrsta aðalfundi félagsins.
Jafnframt greint frá því að sótt hefur verið um kennitölu fyrir félagið.
Deildarstjóri gerir grein fyrir því að nú þegar hafa nægjanlega mörg félög innan Kópavogsbæjar staðfest lög SÍK ásamt undirritun bæjarstjóra. Félagið telst því stofnað samkvæmt þeim reglum sem settar hafa verið um SÍK.
Íþróttaráð samþykkir að tilnefna Jón Finnbogason formann ráðsins í starfsstjórnina sem fulltrúa Kópavogsbæjar. Fulltrúar íþróttafélaganna sem tilnefndir hafa verið eru
Guðmundur Sigurbergsson frá Breiðabliki, Harpa Þorláksdóttir frá Gerplu, Hólmfríður Kristjánsdóttir frá HK og Sveinbjörn Sveinbjörnsson frá Spretti. Jón Finnbogason mun boða til fyrsta stjórnarfundar SÍK.
Lagt fram erindi frá aðalstjórn HK f.h. Blakdeildar félagsins, dagsett 7. desember sl., þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku meistaraflokka kvenna og karla í Evrópukeppnum félagsliða í blaki sem fram fór í Danmörku í nóv. sl.
Íþróttaráð samþykkir að veita sérstyrk samkvæmt viðmiðum um styrki vegna þátttöku í Evrópukeppnum félagsliða, 350 þús. kr. á hvort lið, samtals 700 þús kr.
Lagt fram erindi frá frjálsíþróttadeild Breiðabliks, þar sem óskað er eftir styrk vegna kaupa á stangastökksstöngum.
Á undanförnum árum hefur íþróttaráð miðað við að styrkir til aðstöðu nái ekki til einstaklingsbundins búnaðar. Með vísan til þeirrar venju sem þannig hefur skapast þá synjar íþróttaráð erindinu.
Lagður fram listi með íþróttakonum, íþróttakörlum og íþróttaflokkum sem tilnefnd voru af íþróttafélögunum/-deildum í Kópavogi vegna íþróttaársins 2016.
Íþróttaráð samþykkir að veita 30 íþróttamönnum í flokki 13-16 ára og 10 íþróttamönnum í flokki 17 ára og eldri, viðurkenningu ráðsins á Íþróttahátíð Kópavogs sem haldin verður í Versölum, íþróttahúsi Gerplu laugardaginn 7. janúar 2017.
Í flokki 13-16 ára
Axel Kvaran DÍK Dans
Ágúst Eðvald Hlynsson Breiðablik Knattspyrna
Birta Ósk Þórðardóttir Gerpla Fimleikar
Birta Rún Grétarsdóttir HK Handknattleikur
Blær Hinriksson HK Handknattleikur
Brynjólfur Óli Karlsson Breiðablik Sund
Daníel Dagur Bogason Breiðablik Karate
Eliot Robertet TF Tennis
Gunnar Heimir Ólafsson HK Blak
Gylfi Már Hrafnsson HK Dans
Hafþór Heiðar Birgisson Sprettur Hestaíþróttir
Helgi Rósantsson Breiðablik Frjálsar
Herdís Lilja Björnsdóttir Sprettur Hestaíþróttir
Hildur Björk Jóhannsdóttir DíK Dans
Hulda Clara Gestsdóttir GKG Golf
María Lena Ásgeirsdóttir HK Knattspyrna
María Tinna Hauksdóttir HK Dans
Martin Bjarni Guðmundsson Gerpla Fimleikar
Matthildur Einarsdóttir HK Blak
Móey María Sigþórsdóttir Breiðablik Karate
Regína Lilja Gunnlaugsdóttir Breiðablik Sund
Sara Hlín Jóhannsdóttir Breiðablik Frjálsar
Sigurður Arnar Garðarsson GKG Golf
Sigurður Sölvi Sigurðsson Breiðablik Körfubolti
Sofia Sóley Jónasdóttir TFK Tennis
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen Breiðablik Knattspyrna
Stephan Briem Breiðablik Skák
Valgeir Valgeirsson HK Knattspyrna
Þórdís Rún Hjörleifsdóttir Breiðablik Körfubolti
Í aldursflokki 17 ára og eldri
Anna Bryndís Zingsheim Sprettur Hestaíþr
Anna Soffía Grönholm TFK Tennis
Birgir Leifur Hafþórsson GKG Golf
Ingi Rúnar Kristinsson Breiðablik Fjálsar
Irma Gunnarsdóttir Breiðablik Fjálsar
Jón Margeir Sverrisson Ösp sund
Jón Þór Sigurðsson SFK skotíþróttir
Kjartan Fannar Grétarsson HK Blak
Svana Katla Þorsteinsdóttir Breiðablik karate
Valgerður Sigfinnsdóttir Gerpla Fimleikar
Íþróttaráð samþykkir að veita Móeyju Maríu Kristjánsdóttur og Daníel Degi Bogasyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Ágúst Eðvaldi Hlynssyni og Sólveigu Jóhannesdóttur Larsen viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Stephan Briem viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Regínu Lilju Gunnlaugsdóttur og Brynjólfi Óla Karlssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Hildi Björk Jóhannsdóttur og Axel Kvaran viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Birtu Ósk Þórðardóttur og Martin Bjarna Guðmundssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Huldu Clöru Gestsdóttur og Sigurði Arnari Garðarssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Herdísi Lilju Björnsdóttur og Hafþóri Hreiðari Birgissyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Matthildi Einarsdóttur og Gunnari Heimi Ólafssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Maríu Tinnu Grétarsdóttur og Gylfa Má Hrafnssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Birtu Rún Grétarsdóttur og Blæ Hinrikssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Maríu Lenu Ásgeirdóttur og Valgeiri Valgeirssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Sofíu Sóleyju Jónasdóttur og Eliot Robertet viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Söru Hlín Jóhannsdóttur og Helga Rósantssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Íþróttaráð samþykkir að veita Þórdísi Rún Hjörleifsdóttur og Sigurði Sölva Sigurðssyni viðurkenningu í flokki 13-16 ára.
Fulltrúar hjólreiðadeildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.
Íþróttaráð samþykkir að veita Svönu Kötlu Þorsteinsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Fulltrúar knattspyrnudeildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.
Fulltrúi skíðadeildarinnar er ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.
Íþróttaráð samþykkir að veita Valgerði Sigfinnsdóttur viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Íþróttaráð samþykkir að veita Birgi Leifi Hafþórssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
27
Hestamannafélagið Sprettur. Tilnefningar til íþróttakarls/konu í flokki 17 ára og eldri 2016.
Íþróttaráð samþykkir að veita Önnu Bryndísi Zingsheim viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Íþróttaráð samþykkir að veita Kjartani Fannari Grétarssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Fulltrúar handknattleiksdeildarinnar eru ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.
Fulltrúi knattspyrnudeildarinnar er ekki í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta viðurkenningu íþróttaráðs í ár.
31
Íþróttafélagið Ösp-Sunddeild. Tilnefningar til íþróttakarls/konu í flokki 17 ára og eldri 2016.
Íþróttaráð samþykkir að veita Jóni Margeiri Sverrissyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
32
Skotíþróttafélag Kópavogs. Tilnefningar til íþróttakarls/konu í flokki 17 ára of eldri 2016.
Íþróttaráð samþykkir að veita Jóni Þór Sigurðssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Íþróttaráð samþykkir að veita Önnu Soffíu Grönholm viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Íþróttaráð samþykkir að veita Irmu Gunnarsdóttur og Inga Rúnari Kristinssyni viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.
Skákdeild Breiðabliks tilnefnir A-sveit unglinga sem flokk ársins 2016.
Frestað
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar tilnefnir sveit stúlkna 15 ára og yngri sem flokk ársins 2016.
Frestað
Blakdeild Handknattleiksfélags Kópavogs tilnefnir meistaraflokk karla sem flokk ársins 2016.
Frestað
Íþróttaráð samþykkir að veita Dansíþróttafélagi Kópavogs árangursstyrk að upphæð kr. 20.000,-
Við afgreiðslu starfsstyrkja á 59. fundi íþróttaráðs, 12. maí sl. láðist að færa til bókar samþykktan starfsstyrk til íþróttafélagsins Gerplu að upphæð 5.561.325,- kr., sem samþykktur var samkvæmt framlagðri yfirlitstöflu á fundinum.
Íþróttaráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 5.561.325,-