Íþróttaráð - 55. fundur
í íþróttahúsinu Smáranum
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Lovísa Ólafsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigursteinn Óskarsson - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Magnús Jakobsson - áheyrnarfulltrúi
- Matthías Páll Imsland - aðalfulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Tekið til afgreiðslu val á "Flokki ársins 2015", en 5 tilnefningar bárust frá íþróttafélögunum að þessu sinni.
Íþróttaráð útnefnir Meistaraflokk Breiðabliks í knattspyrnu kvenna flokk ársins 2015.$line$Íþróttaráð samþykkir framlag til flokksins að upphæð 100 þús. kr. vegna útnefningarinnar.
Tekið til afgreiðslu val á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2015 sem frestað var á síðasta fundi ráðsins.
Íþróttaráð samþykkir að útnefna Fanndísi Friðriksdóttur knattspyrnukonu úr Breiðablik, sem Íþróttakonu Kópavogs 2015 og Jón Margeir Sverrisson sundmann úr ÖSP/Fjölni, sem Íþróttakarl Kópavogs 2015.$line$Íþróttaráð samþykkir framlag að upphæð 150 þús. kr. til Íþróttakonu Kópavogs og 150 þús. kr. til Íþróttakarls Kópavogs í tilefni útnefningarinnar
Val á íþróttakonu og karli ársins 2016.
Almennar umræður:$line$Íþróttaráð leggur til að á árinu 2016 muni Íþróttaráð vinna að því að opna valið á íþróttakonu og karli ársins í Kópavogi þannig að bæjarbúar geti verið þátttakendur í valinu með beinum kosningum. Íþróttaráð felur íþróttafulltrúa að leggja fram tillögur að nýjum reglum til umræðu fyrir Íþróttaráð á næsta fundi nefndarinnar.$line$Samþykkt.
Tillaga að dagskrá hátíðarinnar lögð fram.
Íþróttaráð samþykkir eftirfarandi dagskrá og skiptir með sér verkum við framkvæmd hátíðarinnar.$line$Dagskrá: $line$1. Setning hátíðar $line$2. Viðurkenningar í flokki 13-16 ára. $line$3. Viðurkenningar í flokki 17 ára og eldri. $line$4. Viðurkenningar íþróttaráðs vegna alþjóðlegra meistara. $line$5. Viðurkenning flokkur ársins 2015. $line$6. Lýst kjöri á Íþróttakonu og Íþróttakarli Kópavogs 2015. $line$7. Ávörp gesta.$line$8. Hátíðarslit.