Íþróttaráð - 27. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Valdimar F Valdimarsson - starfsmaður nefndar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
- Evert Kristinn Evertsson - aðalfulltrúi
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Hrafn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Anna María Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Gunnar Guðmundsson
Dagskrá fundar
Erindi frá Skákdeild Breiðabliks, dags. 23.ágúst 2013, þar sem óskað er eftir afnotum í sal stúkunnar á Kópavogsvelli fyrir starfsemi deildarinnar.
Íþróttaráð felur starfsmönnum ráðsins að vinna að lausn málsins í samráði við formenn Kraftlyftinga- og Skákdeildar Breiðabliks.
Erindi frá Þríþrautafélagi Kópavogs, (ÞRIKO, dags. 9. ágúst 2013, þar sem óskað er eftir stuðningi Kópavogsbæjar við framkvæmd Firmakeppni ÞRÍKÓ 8. september nk. Erindinu fylgir þakkarbréf til íþróttaráðs vegna aðstoðar við síðasta mót félagsins.
Íþróttaráð samþykkir erindið og felur starfsmönnum ráðsins að afgreiða málið.
03
Leikfélag Kópavogs - Umsókn um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar v/ leiklistarnámskeiða fyrir börn og unglinga
Lagður fram tölvupóstur dags. 14. ágúst 2013, þar sem óskað er eftir aðild að Frístundastyrkjum Kópavogsbæjar v/ leiklistarnámskeiða fyrir börn og unglinga sem Leikfélag Kópavogs býður upp á.
Íþróttaráð samþykkir umsókn Leikfélags Kópavogs um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna leiklistarnámskeiða, með fyrirvara um samþykki Forvarnar- og frístundanefndar.
04
Heilsuskóli Tanyu - Umsókn um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar v/ Zumbanámskeiða fyrir börn og unglinga
Lagður fram tölvupóstur dags. 18. ágúst 2013, þar sem óskað er eftir aðild að Frístundastyrkjum Kópavogsbæjar v/ zumbanámskeiða fyrir börn- og unglinga sem Heilsuskólinn býður upp á.
Íþróttaráð samþykkir umsókn Heilsuskóla Tanyu um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna zumbanámskeiða, með fyrirvara um samþykki Forvarnar- og frístundanefndar.
Lagt fram erindi frá Laufeyju Björk Sigmarsdóttur, dags. 22. apríl 2013, þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku hennar á Smáþjóðaleikunum í Lúxemburg. Erindinu var frestað á fundi ráðsins í maí sl.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem ferðastyrkir ráðsins voru aflagðir árið 2011. Ráðið fékk fjárveitingu til afreksstyrkja fyrir árið 2013 en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um ráðstöfun þeirra. Nánar auglýst síðar.
Lagður fram tölvupóstur, dags. 16. apríl 2013, frá fimm leikmönnum Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks með ósk um ferðastyrk vegna verkefna með unglingalandsliðum í körfuknattleik. Erindinu var frestað á fundi ráðsins í maí sl.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem ferðastyrkir ráðsins voru aflagðir árið 2011. Ráðið fékk fjárveitingu til afreksstyrkja fyrir árið 2013 en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um ráðstöfun þeirra. Nánar auglýst síðar.
Lagður fram tölvupóstur frá meistaraflokksráði HK í knattspyrnu karla, dags. 19.08 2013, þar sem óskað er eftir að spila síðustu þrjá heimaleiki liðsins í Fagralundi.
Íþróttaráð samþykkir erindið.