Til baka í fundargerðir
Styrkbeiðni vegna landsliðsverkefna
Málsnúmer: 1305353
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 27. fundur
Lagður fram tölvupóstur, dags. 16. apríl 2013, frá fimm leikmönnum Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks með ósk um ferðastyrk vegna verkefna með unglingalandsliðum í körfuknattleik. Erindinu var frestað á fundi ráðsins í maí sl.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem ferðastyrkir ráðsins voru aflagðir árið 2011. Ráðið fékk fjárveitingu til afreksstyrkja fyrir árið 2013 en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um ráðstöfun þeirra. Nánar auglýst síðar.
02
Íþróttaráð - 25. fundur
Lagt fram erindi frá fimm leikmönnum í unglingalandsliðum í körfuknattleik vegna ferða þeirra til Svíþjóðar og Danmerkur.
Frestað.