Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 140. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Gylfason - aðalmaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi
  • Sunna Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Íris Svavarsdóttir - embættismaður

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

01

Frístundastyrkir 2023 - Samantekt, nýting og þróun styrkja sl.ár

Á fundinn mætti Ævar Ólafsson, rekstrarfulltrúi á menntasviði og kynnti nýtingu frístundastyrks fyrir árið 2023 ásamt þróun styrksins síðustu ár.

Íþróttaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar góðri nýtingu á frístundastyrknum. Þó er áhyggjuefni hversu börn sem eru ekki með íslenskt ríkisfang nýta styrkinn hlutfallslega verr. Mikilvægt er að fara í enn frekari átaksverkefni til að auka þátttöku þessara barna í íþrótta- og frístundastarfi.

02

Afnot íþróttamannvirkja - reiknuð leiga 2023

Lagt fram yfirlit íþróttadeildar yfir reiknaða leigu vegna afnota íþróttafélaga í Kópavogi af íþróttamannvirkjum bæjarins árið 2023.

Yfirlitið er á grundvelli reglna íþróttaráðs um afnot af íþróttamannvirkjum frá 2015. Á móti reiknaðri leigu kemur styrkur frá íþróttaráði að sömu fjárhæð til viðkomandi íþróttafélags, sem skal færa sem styrk á móti reiknaðri leigu í ársreikningum félaganna.

Reiknuð leiga vegna 2023 er að upphæð 1.596.699.895,- kr. og skiptist hún eftirfarandi á íþróttafélögin:

Breiðablik 643.652.146, HK 616.930.520, Gerpla 271.647.912, Hvönn 8.659.452, Glóð 3.222.858, Stálúlfur 18.171.519, Ísbjörninn 11.290.047, Knattspyrnufélag Kópavogs 596.504, Knattspyrnufélagið Miðbær 495.466, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 9.093.156, Skotíþróttafélag Kópavogs 9.771.898 og Íþróttafélagið Ösp 3.168.419.

Deildarstjóri íþróttadeildar kynnti samantekt.

Lagt fram.

03

Æfingatöflur íþróttamannvirkja 2024-2025 - Rammi til úthlutunar

Lagður fram rammi að æfingatöflum fyrir veturinn 2024-2025.

Lagt fram.

Íþróttaráð samþykkir framlagðan ramma fyrir 2024/2025.

04

Ferðastyrkir íþróttaráðs 2023.

Lögð fram samantekt á úthlutun ferðastyrkja á árinu 2023.

Lagt fram.

Íþróttaráð samþykkir hækkun ferðastyrks um 5.000,- kr. sem jafngildir 16,7% hækkun.

05

Æfingagjöld íþróttafélaga 2023-2024

Lögð fram samantekt íþróttadeildar yfir breytingar á æfingagjöldum íþróttafélaga/-deilda, milli áranna 2022/2023 og 2023/2024 sem unnið var úr innsendum upplýsingum frá félögunum.

Lagt fram.

Óskað verður eftir skýringum hjá þeim fáu félögum/deildum þar sem gjöld hafa hækkað umfram viðmið.

06

Sumarnámskeið íþróttafélaga 2023

Lögð fram samantekt íþróttadeildar á umfangi og kostnaði við sumarnámskeið íþrótta- og æskulýðsfélaga í Kópavogi sumarið 2023. Jafnframt lagðar fram skýrslur félaganna vegna námskeiðanna.

Lagt fram.

Íþróttaráð óskar eftir nánari upplýsingum fyrir næsta fund.

07

Málefni íþróttahátíðar

Eftirfarandi málefni íþróttahátíðar tekin til umræðu að ósk Einars Þorvarðarsonar:

1. Reglur um kosningu á sjálfboðaliða ársins.

2. Er ástæða til að breyta kosningu á íþróttamanni, konu og kvár.

3. Kostnaður vegna íþróttahátíðar Kópavogs, samnaburður áranna 2023

og 2024.

1. Umræður, frestað til næsta fundar.

2. Umræður.

3. Samanburður áranna 2022 og 2023 lagður fram og kynntur.