Frístundastyrkir 2023
Málsnúmer: 2402832
Ferill máls
01
Menntaráð - 126. fundur
Kynning á nýtingu frístundastyrkja 2023.
Menntaráð þakkar fyrir kynningu Ævars Ólafssonar, rekstrarfulltrúa menntasviðs, á nýtingu frístudastyrks.
Ráðið tekur undir eftirfarandi bókun íþróttaráðs frá 140. fundi þess: Íþróttaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar góðri nýtingu á frístundastyrknum. Þó er áhyggjuefni hversu börn sem eru ekki með íslenskt ríkisfang nýta styrkinn hlutfallslega verr. Mikilvægt er að fara í enn frekari átaksverkefni til að auka þátttöku þessara barna í íþrótta- og frístundastarfi.
02
Íþróttaráð - 140. fundur
Á fundinn mætti Ævar Ólafsson, rekstrarfulltrúi á menntasviði og kynnti nýtingu frístundastyrks fyrir árið 2023 ásamt þróun styrksins síðustu ár.
Íþróttaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar góðri nýtingu á frístundastyrknum. Þó er áhyggjuefni hversu börn sem eru ekki með íslenskt ríkisfang nýta styrkinn hlutfallslega verr. Mikilvægt er að fara í enn frekari átaksverkefni til að auka þátttöku þessara barna í íþrótta- og frístundastarfi.