Íþróttaráð - 123. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sverrir Kári Karlsson - formaður
- Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Gylfason - aðalmaður
- Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi
- Sunna Guðmundsdóttir - aðalmaður
- Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - íþróttafulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Gunnar Guðmundsson
Dagskrá fundar
Auður Finnbogadóttir, verkefnastjóri stefnumótunar, kynnti vinnu við innleiðingu heildarstefnumótunar Kópavogsbæjar.
Íþróttaráð þakkar góða kynningu.
Encho Plamenov Stoyanov, verkefnastjóri á umhverfissviði kynnti drög að loftslagsstefnu Kópavogsbæjar. Óskað er eftir umsögn íþróttaráðs.
Íþróttaráð þakkar góða kynningu og gerir engar athugasemdir við drögin.
Lagt fram erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks, ódagsett, þar sem félagið óskar eftir að fá að merkja þau íþróttamannvirki bæjarins sem eru í rekstri félagsins með nöfnum styrktaraðila.
Íþróttaráð samþykkir að Breiðablik verði heimilt að merkja þau íþróttamannvirki sem eru í rekstri Breiðabliks nöfnum styrktaraðila félagsins. Mannvirkin heita eftir sem áður sínum upprunalegu nöfnum og merkingar skulu vera í sátt við skipulag og umhverfi sitt og í takt við ímynd, ásýnd og stefnu Kópavogsbæjar.
Íþróttaráð vísar erindinu til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lagt fram erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks, ódagsett, þar sem óskað er eftir úttekt á nýtingu íþróttamannvirkja í bænum og þarfagreiningu með tilliti til úthlutunar á æfingatímum.
Í menntastefnu Kópavogsbæjar 2021-2030, sem samþykkt var 12. október 2021, er m.a. lögð áhersla á að mæta ólíkum þörfum íbúa til aukinnar hreyfingar í formi uppbyggingar og nýtingu mannvirkja. Hluti aðgerða er að greina þörf og nýtingu íþróttamannvirkja. Íþróttadeild bæjarins hefur þegar hafið þá vinnu og leggur íþróttaráð áherslu á að hraða þeirri vinnu.
Farið í heimsókn til Tennisfélags Kópavogs í Tennishöllina við Dalsmára