Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 10. fundur
í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Lára Jóna Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Erlendur H. Geirdal - aðalfulltrúi
- Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
- Katrín Guðjónsdóttir - aðalfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson - varafulltrúi
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Kosning formanns og varaformanns ráðsins
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir er kosin formaður nefndarinnar og Una Björg Einarsdóttir varaformaður.
Lagt fram til kynningar. Jafnréttisráðgjafi mun lista upp þau verkefni sem eru á áætlun árið 2012.
Niðurstaða athugunar á kynjaskiptingu í nefndum, ráðum og stjórnum eftir meirihlutaskipti og kosningar í nefndir leiðir í ljós að 65% nefndarmanna eru karlar og 35% nefndarmanna konur. Jafnréttis- og mannréttindaráð skorar á bæjarstjórn Kópavogs að jafna hlut kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins. Ráðið vísar til þess að samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar ber að hafa 2:3 skiptingu í fimm manna nefndum og 1:2 í þriggja manna nefndum. Ráðið óskar eftir skýringum á ástæðum þess að jafnréttisstefnunni var ekki fylgt við kosningar í nefndir.
Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar samstarfi við MK um jafnréttisviku í skólanum og lýsir yfir vilja sínum til þess að taka þátt í því samstarfi með sama hætti og undanfarin ár. Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar öllum sem komu að verkefninu. Samþykkt er að styrkja verkefnið um kr. 75.000.
Bæjarráð vísar tillögunum verkefnahóps SSH um málefni innflytjenda til jafnréttis- og mannréttindanefndar, skólanefndar, leikskólanefndar og félagsmálaráðs til umsagnar. Jafnréttis- og mannréttindaráð tekur undir tillögur verkefnahópsins.