Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Niðurstaða könnunar á kynjaskiptingu í nefndum og ráðum 2011-2014

Málsnúmer: 1104271

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2643. fundur

Bókun jafnréttis- og mannréttindanefndar í fundargerð 23/5 lið 2:$line$Ráðið áréttar bókun sína frá 7. mars sl. og óskar eftir skýringum á ástæðum þess að jafnréttisstefnu bæjarins er ekki fylgt við kosningar í nefndir.

Bæjarráð felur bæjarritara að fara yfir könnunina ásamt jafnréttisráðgjafa.

02

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 12. fundur

Niðurstaða athugunar á kynjaskiptingu í nefndum, ráðum og stjórnum eftir breytingar sem gerðar voru á fimm nefndum í apríl 2012 leiðir í ljós að 64% nefndarmanna eru karlar og 36% konur. Ráðið áréttar bókun sína frá 7. mars sl. og óskar eftir skýringum á ástæðum þess að jafnréttisstefnu bæjarins er ekki fylgt við kosningar í nefndir.

03

Bæjarráð - 2634. fundur

Frá jafnréttisráðgjafa, dags. 8/3, niðurstaða athugunar á kynjaskiptingu í nefndum, sbr. lið 2 í fundargerð jafnréttis- og mannréttindaráðs frá 7/3 sl. þar sem eftirfarandi var bókað:$line$"Niðurstaða athugunar á kynjaskiptingu í nefndum, ráðum og stjórnum eftir meirihlutaskipti og kosningar í nefndir leiðir í ljós að 65% nefndarmanna eru karlar og 35% nefndarmanna konur. $line$ $line$Jafnréttis- og mannréttindaráð skorar á bæjarstjórn Kópavogs að jafna hlut kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins. Ráðið vísar til þess að samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar ber að hafa 2:3 skiptingu í fimm manna nefndum og 1:2 í þriggja manna nefndum. $line$$line$Ráðið óskar eftir skýringum á ástæðum þess að jafnréttisstefnunni var ekki fylgt við kosningar í nefndir."

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirritaður leggur til að oddvitar framboðanna í bæjarstjórn komi saman og ræði kynjaskiptingu í nefndum.</EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson"</EM>Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirritaður leggur til að tillögu Ólafs Þórs verði frestað þar til kosið hefur verið í nýjar nefndir og skjal jafnréttisfulltrúa þá yfirfarið.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM><EM></EM>Bæjarráð samþykkir tillögu Ómars Stefánssonar um frestun.

04

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 10. fundur

Niðurstaða athugunar á kynjaskiptingu í nefndum, ráðum og stjórnum eftir meirihlutaskipti og kosningar í nefndir leiðir í ljós að 65% nefndarmanna eru karlar og 35% nefndarmanna konur. Jafnréttis- og mannréttindaráð skorar á bæjarstjórn Kópavogs að jafna hlut kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins. Ráðið vísar til þess að samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar ber að hafa 2:3 skiptingu í fimm manna nefndum og 1:2 í þriggja manna nefndum. Ráðið óskar eftir skýringum á ástæðum þess að jafnréttisstefnunni var ekki fylgt við kosningar í nefndir.

05

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 2. fundur

Jafnréttisfulltrúi leggur fram til kynningar niðurstöðu á könnun á kynjahlutfalli í nefndum og ráðum 2011-2014.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Jafnréttis- og mannréttindanefnd lýsir yfir ánægju sinni með niðustöðu könnunarinnar sem sýnir að hlutfall kvenna í nefndum og ráðum bæjarins er 45,5%.&nbsp; Hins vegar eru brotalamir á því að kynjahlutfall innan nefnda séu í samræmi við jafnréttisstefnu bæjarins. </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;