Til baka í nefndaryfirlit
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 7. fundur
í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Erla Karlsdóttir - formaður
- Þorsteinn Ingimarsson - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir lögfræðingur
Dagskrá fundar
Almenn mál
Jafnréttis- og mannréttindaráð lýsir vanþóknun sinni á viðburðinum "Dirty Night" sem fara á fram á skemmtistaðnum Players í Kópavogi þann 12. nóvember 2011. Með því að hlutgera einstaklinga, bæði karla og konur, eins og sýnt er að verði gert á þessu kvöldi, er verið að senda röng skilaboð út í samfélagið og við viljum ekki að slíkt eigi sér stað í bæjarfélaginu okkar. Viðburðurinn er að áliti ráðsins niðurlægjandi fyrir alla sem í hlut eiga: konur, karla, bæjafélagið og skemmtistaðinn. Jafnréttis- og mannréttindaráð felur jafnréttisráðgjafa Kópavogs að leggja fram kæru á hendur auglýsendum viðburðarins vegna brots á 29. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.