Beint í efni
Til baka í fundargerðir

"Dirty Night" á skemmtistaðnum Players í Kópavogi

Málsnúmer: 1111271

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 12. fundur

Lagt fram til kynningar bréf frá Lögreglustjóranum á Höfuðborgarsvæðinu dags. 30. apríl 2012 þar sem tilkynnt er að fallið hafi verið frá rannsókn málsins. Jafnréttis- og mannréttindaráð áréttar bókun sína frá 12. nóvember 2012.

02

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 7. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð lýsir vanþóknun sinni á viðburðinum "Dirty Night" sem fara á fram á skemmtistaðnum Players í Kópavogi þann 12. nóvember 2011. Með því að hlutgera einstaklinga, bæði karla og konur, eins og sýnt er að verði gert á þessu kvöldi, er verið að senda röng skilaboð út í samfélagið og við viljum ekki að slíkt eigi sér stað í bæjarfélaginu okkar. Viðburðurinn er að áliti ráðsins niðurlægjandi fyrir alla sem í hlut eiga: konur, karla, bæjafélagið og skemmtistaðinn. Jafnréttis- og mannréttindaráð felur jafnréttisráðgjafa Kópavogs að leggja fram kæru á hendur auglýsendum viðburðarins vegna brots á 29. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.