Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 8. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Erla Karlsdóttir - formaður
  • Lára Jóna Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Þorsteinn Ingimarsson - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Janus Arn Guðmundsson - aðalfulltrúi
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

01

Erindi frá foreldri vegna mismununar í grunnskólum Kópavogs

Jafnréttis- og mannréttindaráð felur jafnréttisráðgjafa að afla eftirfarandi upplýsinga fyrir næsta fund: a. frá sóknum um það hvort fermingafræðsla og fermingaferðalög fari fram á skólatíma. b. frá grunnskólum bæjarins um það hvort þau börn sem ekki fara í fermingaferðalög fái kennslu á þeim tíma og hvernig þeirri kennslu sé háttaðc. um hvort þess sé gætt að börn sem ekki fermist finni ekki til aðgreiningar í skólanum vegna sinna lífsskoðana.d. um hvaða reglur gildi í einstökum skólum um frí til nemenda m.t.t. hvaða áhrif að gefa frí til meiri hluta nemenda í bekk hefur á möguleika annarra nemenda til fræðslu.

02

Tillaga um sameiginlega stefnu/áætlun til að sporna við einelti innan stofnana bæjarins

Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti. Það leggur áherslu á að stefnan verði gefin út og fylgt eftir með kynningu fyrir alla starfsmenn. Þá verði tryggt fjármagn til sérstakrar árlega fræðslu fyrir forstöðumenn stofnanna bæjarins. Jafnréttisráðgjafa er falið að leita tilboða í útgáfu bækling byggðan á eineltisstefnu bæjarins.