Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi frá foreldri vegna mismununar í grunnskólum Kópavogs

Málsnúmer: 1111040

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 9. fundur

Jafnréttisráðgjafi aflaði upplýsinga frá grunnskólum Kópavogsbæjar og sóknum í sveitarfélaginu um skipulag fermingafræðslu og fermingaferðalaga vegna kvörtunar foreldris grunnskólabarns um að fermingaferðalög séu farin á skólatíma. Allir sóknarprestar svöruðu og svör bárust frá sjö af ellefu grunnskólum bæjarins. Þau voru lögð fram og rædd.

02

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 8. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð felur jafnréttisráðgjafa að afla eftirfarandi upplýsinga fyrir næsta fund: a. frá sóknum um það hvort fermingafræðsla og fermingaferðalög fari fram á skólatíma. b. frá grunnskólum bæjarins um það hvort þau börn sem ekki fara í fermingaferðalög fái kennslu á þeim tíma og hvernig þeirri kennslu sé háttaðc. um hvort þess sé gætt að börn sem ekki fermist finni ekki til aðgreiningar í skólanum vegna sinna lífsskoðana.d. um hvaða reglur gildi í einstökum skólum um frí til nemenda m.t.t. hvaða áhrif að gefa frí til meiri hluta nemenda í bekk hefur á möguleika annarra nemenda til fræðslu.