Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 21. fundur
í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
- Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Ólafsson - aðalfulltrúi
- Ragnheiður K Guðmundsdóttir - formaður
- Kristín Sævarsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Farið yfir tilnefningar til jafnréttis- og mannréttindaviðurkenningar Kópavogsbæjar árið 2013.
Umsókn G. Svölu Arnardóttur.
Jafnréttis- og mannréttindaráð getur því miður ekki orðið við erindinu að þessu sinni.
Umsókn Írisar Arnardóttur
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að veita umsækjanda styrk að upphæð kr. 50.000.
Umsókn Sigurbjörns Rúnars Björnssonar f.h. SHÆKO hönnunar
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að veita umsækjanda styrk að upphæð kr. 100.000.
Umsókn Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur og Sigrúnar Ernu Sævarsdóttur
Jafnréttis- og mannréttindaráð getur því miður ekki orðið við erindinu að þessu sinni.
Umsókn frá Leikskólanum Álfaheiði
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að veita umsækjanda styrk að upphæð kr. 50.000.
Umsókn Andreu Bjarkar Andrésdóttur vegna Reconesse Database.
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að veita umsækjanda styrk að upphæð kr. 100.000.
Umsókn Guðrúnar Elvu Arinbjarnardóttur og Ragnheiðar Jónu Laufdal
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að veita umsækjanda styrk að upphæð kr. 100.000.
Umsókn foreldra og aðstandenda L-100 hóps Gerplu.
Jafnréttis- og mannréttindaráð getur því miður ekki orðið við erindinu að þessu sinni.
Umsókn Kópavogsskóla og félagsmiðstöðvarinnar kjarnans.
Jafnréttis- og mannréttindaráð getur því miður ekki orðið við erindinu að þessu sinni. Ráðið hvetur menntasvið Kópavogs til þess að efna til samstarfs við Menntaskólann í Kópavogi sem um árabil hefur staðið fyrir jafnréttisviku.
Vísað til umsagnar jafnréttis- og mannréttindanefndar sbr. bókun bæjarráðs 25. júlí sl.
Jafnréttis- og mannréttindaráð telur Kópavogsbæ hafa ákveðnum skyldum að gegna sem annað stærsta sveitarfélag landsins til þess að veita liðsinni sitt við þjónustu við hælisleitendur. Ráðið lítur umsóknina jákvæðum augum og mælist til að sveitarfélagið gangi til samstarfs við innanríkisráðuneytið.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram.
Samkvæmt nýafstaðinni launakönnun BSRB er óútskýrður launamunur kynja meiri hjá sveitarfélögum en hjá ríki. Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar skorar á bæjarráð að flýta ítarlegri launakönnun meðal starfsmanna og birta opinberlega niðurstöður hennar.