Beint í efni
Til baka í fundargerðir
Dvöl hælisleitenda í Auðbrekku 23
Málsnúmer: 1307267
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1360. fundur
Lagt fram til kynningar svar frá innanríkisráðuneytinu dags. 18. október 2013.
02
Bæjarráð - 2702. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
"Nú nýverið lýsti bæjarstjórn Kópavogs áhuga sínum á þátttöku í þjónustu við hælisleitendur. Í síðustu viku kemur svo í ljós að annað sveitarfélag (Reykjanesbær) virðist hafa leigt húsnæði fyrir hælisleitendur í iðnaðarhverfi í Kópavogi. Umfjöllun fjölmiðla þar um er bæjarráðsmönnum kunn. Í ljósi þessa vill undirritaður leggja fram eftirfarandi spurningar og óska greinargerðar frá bæjarstjóra um málið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
a) Var bæjaryfirvöldum eða félagsmálayfirvöldum eða einhverjum starfsmönnum bæjarins ljóst að umrædd starfsemi færi fram í bænum hvort heldur tilkynning um slíkt barst með formlegum hætti eða óformlegum?<o:p></o:p>
b) Hefur verið kannað hver réttarstaða bæjarins er gagnvart annars vegar leigu sveitarfélaginu og hins vegar gagnvart umbjóðendum þess vegna málsins?<o:p></o:p>
c) Munu bæjaryfirvöld ræða þessa stöðu eða óska eftir fundum þar um með bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ eða innanríkisráðuneytinu?
03
Félagsmálaráð - 1358. fundur
Félagsmálaráð telur að innanríkisráðuneytið verði að gefa viðhlýtandi skýringar á því, afhverju sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um að Reykjanesbær hafi leigt húsnæði undir hælisleitendur í sveitarfélaginu, áður en viðræður um móttöku hælisleitenda geti hafist.
04
Bæjarráð - 2699. fundur
Umsögn jafnréttis- og mannréttindaráðs, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 25. júlí sl:$line$Jafnréttis- og mannréttindaráð telur Kópavogsbæ hafa ákveðnum skyldum að gegna sem annað stærsta sveitarfélag landsins til þess að veita liðsinni sitt við þjónustu við hælisleitendur. Ráðið lítur umsóknina jákvæðum augum og mælist til að sveitarfélagið gangi til samstarfs við innanríkisráðuneytið.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu jafnréttis- og mannréttindanefndar.Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:"Undirrituð greiða þessu atkvæði með þeim fyrirvara að ekki falli útlagður kostnaður á sveitarfélagið.Ármann Kr. Ólafsson, Rannveig Ásgeirsdóttir, Ómar Stefánsson"
05
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 21. fundur
Vísað til umsagnar jafnréttis- og mannréttindanefndar sbr. bókun bæjarráðs 25. júlí sl.
Jafnréttis- og mannréttindaráð telur Kópavogsbæ hafa ákveðnum skyldum að gegna sem annað stærsta sveitarfélag landsins til þess að veita liðsinni sitt við þjónustu við hælisleitendur. Ráðið lítur umsóknina jákvæðum augum og mælist til að sveitarfélagið gangi til samstarfs við innanríkisráðuneytið.
06
Félagsmálaráð - 1356. fundur
Félagsmálaráð lítur jákvætt á erindið og felur starfsmönnum að afla frekari upplýsinga um hvað felst í samstarfinu og reynslu annarra sveitarfélaga af þjónustu við hælisleitendur fyrir næsta fund.
07
Bæjarráð - 2695. fundur
Frá innanríkisráðuneytinu, dags. 10. júlí, óskað eftir samstarfi við sveitarfélög um þjónustu við hælisleitendur.
Málinu er vísað til jafnréttis- og mannréttindanefndar til umsagnar.