Til baka í nefndaryfirlit
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 60. fundur
í Molanum ungmennahúsi Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Ísól Fanney Ómarsdóttir - aðalfulltrúi
- Amid Derayat - aðalfulltrúi
- Ragnheiður Bóasdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Almenn mál
Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar Evu Halapi frá Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir kynningu á launakönnun sem miðstöðin vann að beiðni ráðsins.
Niðurstaða könnunarinnar er að þegar tekið hefur verið tillit til áhrifaþátta á borð við aldur, starf, svið, starfsaldur og vinnutíma er ekki marktækur munur á heildarlaunum kynjanna hjá Kópavogsbæ.
Síðast þegar sambærileg rannsókn var gerð á vegum bæjarins árið 2013 voru karlar með 3,25% hærri laun en konur.
Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar því að kynbundnum launamun meðal starfsfólks hafi verið eytt.