Til baka í fundargerðir
Launakönnun skv. jafnréttis- og mannréttindastefnu 2015-2018
Málsnúmer: 1712467
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 60. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar Evu Halapi frá Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir kynningu á launakönnun sem miðstöðin vann að beiðni ráðsins.
Niðurstaða könnunarinnar er að þegar tekið hefur verið tillit til áhrifaþátta á borð við aldur, starf, svið, starfsaldur og vinnutíma er ekki marktækur munur á heildarlaunum kynjanna hjá Kópavogsbæ.
Síðast þegar sambærileg rannsókn var gerð á vegum bæjarins árið 2013 voru karlar með 3,25% hærri laun en konur.
Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar því að kynbundnum launamun meðal starfsfólks hafi verið eytt.