Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 55. fundur

á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Papey

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ragnheiður Bóasdóttir - aðalfulltrúi
  • Amid Derayat - aðalfulltrúi
  • Sema Erla Serdaroglu - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Vilmundardóttir
    Boðaði forföll
    Guðmundur Hákon Hermannsson
    Sat fundinn í staðinn
  • Ísól Fanney Ómarsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum 2015-2018

Farið yfir stöðu verkefna.

Athugasemd fyrir:

02

Lýðheilsustefna í Kópavogi

Jafnréttis- og mannréttindaráð lýsir yfir ánægju með lýðheilsustefnu Kópavogsbæjar.

Sema Erla Serdar leggur fram eftirfarandi bókun:

,,Eitt af markmiðunum í nýrri lýðheilsustefnu Kópavogsbæjar er að hvetja íbúa til aukinnar hreyfingar. Einstaklingarklefar/kynlausir klefar eru mikilvægir til þess að tryggja aðgengi allra að sund- og búningsaðstöðu í bænum. Slíkt myndi hafa hvetjandi áhrif á þá hópa fólks sem hafa ekki getað nýtt sér þær aðstöður sem fyrir eru til þess að gera svo. Því er lagt til að því sé bætt við aðgerðaráætlun bæjarins í lýðheilsumálum að koma slíkum klefum á fót í sund- og búningsaðstöðu bæjarins."

Jafnréttis- og mannréttindaráð tekur undir bókun Semu Erlu.

Jafnréttis og mannréttindaráð telur jafnframt mikilvægt að tryggja aðgengi allra að aðstöðu í íþróttamannvirkjum og á sundstöðum t.d. að lyftur fyrir hreyfihamlaða séu til staðar við sundlaugar og heita potta.