Framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum 2015-2018
Málsnúmer: 1511566
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 56. fundur
Farið yfir stöðu verkefna
02
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 55. fundur
Farið yfir stöðu verkefna.
03
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 52. fundur
Lagt fram.
04
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 51. fundur
Vinnufundur.
05
Bæjarráð - 2839. fundur
Frá jafnréttisráðgjafa, dags. 27. september, lagt fram erindi vegna framkvæmdaáætlunar Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum sem bæjarráð vísaði til umsagnar nefnda og ráða bæjarins á fundi þann 26.05.2016.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum til bæjarritara til úrvinnslu.
06
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 50. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð leggur mikla áherslu á að við gerð fjárhagsáætlana hvers árs verði gert ráð fyrir fjármagni til verkefna á sviði ráðsins sem mörg hver eru lögbundin.
07
Skipulagsnefnd - 1283. fundur
Bæjarráð - 2823 (26.5.2016)
Frá jafnréttisráðgjafa, dags. 24. maí, lögð fram drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum byggða á mannréttindastefnu bæjarins.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar.
Skipulagsnefnd fagnar drögum að framkvæmdaráætlun og mun senda skipulagsstjóra ábendingar ef þurfa þykir.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 78. fundur
Bæjarráð - 2823 (26.5.2016)
Frá jafnréttisráðgjafa, dags. 24. maí, lögð fram drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum byggða á mannréttindastefnu bæjarins.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar.
Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar drögum að framkvæmdaráætlun og mun senda umhverfisfulltrúa ábendingar ef þurfa þykir.
09
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 49. fundur
Jafnréttisráðgjafi upplýsir ráðið um stöðu mála og þær umsagnir sem borist hafa bæjarráði frá öðrum nefndum og ráðum bæjarins í umsagnarferlinu.
10
Leikskólanefnd - 72. fundur
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar
Leikskólanefnd fagnar drögum að framkvæmdaráætlun og mun senda deildarstjóra leikskóladeildar ábendingar ef þurfa þykir.
11
Skólanefnd - 105. fundur
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar.
Skólanefnd fagnar drögum að framkvæmdaáætlun og mun senda deildarstjóra grunnskóladeildar ábendingar ef þurfa þykir.
12
Leikskólanefnd - 71. fundur
Lagt fram til kynningar og frestað til næsta fundar.
13
Lista- og menningarráð - 61. fundur
Bæjarráð vísar framkvæmdaáætluninni til umsagnar nefnda og ráða bæjarins.
Lista- og menningarráð fagnar framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum. Í framkvæmdaáætlun jafnréttis- og mannréttindaráðs er kafli sem snýr að menningu, þar stendur: "Verkefni: Menningarhús bæjarins kanni hvernig ólíkir hópar (kyn, aldur, o.fl.) nota þjónustu þeirra með það fyrir augum að hægt verði að gera sérstak átak komi í ljós að ákveðnir hópar nýta sér ekki þjónustuna. Könnun gerð á árinu 2017 í samstarfi við jafnréttis- og menningarráð." $line$$line$Lista- og menningarráð vísar til nýlegrar samþykktrar Menningarstefnu sem ráðið og sviðið starfar í samræmi við. Ráðið telur verkefni eins og framkvæmdaáætlun kveður á um ekki tímabært að svo stöddu nema til komi viðbótarfjármagn.$line$
14
Félagsmálaráð - 1412. fundur
Félagsmálaráð fagnar framlögðum drögum að framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum.$line$$line$Kristín Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Í framkvæmdaáætlun jafnréttis- og mannréttindaráðs er ekki tekið á brottfalli minnihlutahópa s.s. hinsegin ungmenna og barna af erlendum uppruna úr íþróttastarfi. Ljóst er að þessir hópar verða fyrir fordómum við íþróttaiðkun og mikil þörf er á að bregðast við með raunhæfum aðgerðum. Kópavogsbær getur stutt við íþróttafélögin með markvissri fræðslu til þjálfara og annarra aðstandenda íþróttafélaganna um málefni hinsegin ungmenna og ungmenna af erlendum uppruna."$line$$line$Félagsmálaráð tók samhljóða undir bókun Kristínar. $line$Ennfremur vill félagsmálaráð beina því til jafnréttis- og mannréttindanefndar að sjálfstyrkingarnámskeið þau sem lögð eru til fyrir 13-16 ára stúlkur verði gerð aðgengileg öllum unglingum.
15
Barnaverndarnefnd - 56. fundur
Lagt fram til kynningar. Nefndin gerir ekki athugasemdir við framkvæmdaáætlunina.
16
Íþróttaráð - 60. fundur
Á fundi bæjarráðs Kópavogs 26. maí sl., voru lögð fram drög að Framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis - og mannréttindamálum sem ráðið vísaði til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar.
Lagt fram og afgreiðslu frestað til næsta fundar.
17
Bæjarráð - 2823. fundur
Frá jafnréttisráðgjafa, dags. 24. maí, lögð fram drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum byggða á mannréttindastefnu bæjarins.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar.
18
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 47. fundur
Lokadrög samþykkt. Drögin verða send til umsagnar í nefndum í næstu viku og í framhaldi til bæjarráðs til samþykktar.
19
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 46. fundur
Farið yfir fyrirliggjandi drög og breytingatillögur ræddar og samþykktar.
20
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 45. fundur
Farið yfir drög aðgerðaáætlunarinnar. Áætlunin verður send til umsagnar hlutaðeigandi nefnda þegar drögin eru tilbúin.
21
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 44. fundur
Farið yfir drög að framkvæmdaráætlun.
22
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 43. fundur
Unnið að gerð framkvæmdaáætlunar.