Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 40. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Ragnheiður Bóasdóttir - aðalfulltrúi
  • Lárus Axel Sigurjónsson - aðalfulltrúi
  • Unnur Tryggvadóttir Flóvenz - aðalfulltrúi
  • Amid Derayat - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Björgvinsdóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Jón Kristinn Snæhólm mætti ekki.

Dagskrá fundar

01

Auglýsing eftir tilnefningu til jafnréttis- og mannréttindaviðurkenningar 2015

Frestað til næsta fundar.

02

Beiðni um styrk til heimildamyndagerðar

Marteinn Sigurgeirsson óskar eftir styrk til gerðar heimildarmyndarinnar ,,Kraftmiklar konur í Kópavogi" helguð konur í Kópavogi.

Jafnréttis- og mannréttindaráð getur ekki orðið við beiðninni en hvetjur bæjarráð til þess að taka umsóknina til umfjöllunar þegar frekari gögn liggja fyrir. Ráðið mælir með því að verkefnið verði styrkt.

03

Jafnréttis- og mannréttindafulltrúar sviða

Jafnréttis- og mannréttindaráð leggur til að á hverju sviði stjórnsýslunnar verði tilnefndur jafnréttis- og mannréttindafulltrúi sem hafi það hlutverk að sjá til þess í samráði við stjórnendur og jafnréttisráðgjafa að jafnréttis- og mannréttindatefnu bæjarins sé framfylgt.

04

Aðgerðaáætlun jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2015-2018

Jafnréttis- og mannréttindaráð leggur áherslu á að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 verði gert ráð fyrir fjármagni til þess að framfylgja markmiðum jafnréttis- og mannréttindastefnu bæjarins sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 28. apríl 2015. $line$$line$Framkvæmdaáætlun er í vinnslu og vill ráðið leggja áherslu á fræðslu og kynningu stefnunnar og innleiðingu hugmyndafræði hennar í alla starfsemi bæjarins. Til þess að svo megi verða telur ráðið nauðsynlegt að fjármagn til málaflokksins verði aukið til muna.

05

Önnur mál jafnréttisnefndar.

Formaður ráðsins greindi frá þátttöku sinni á landsfundi jafnréttisnefnda sveitarfélaga þann 9. október sl. á Egilstöðum.