Aðgerðaáætlun jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2015-2018
Málsnúmer: 1506284
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 40. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð leggur áherslu á að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 verði gert ráð fyrir fjármagni til þess að framfylgja markmiðum jafnréttis- og mannréttindastefnu bæjarins sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 28. apríl 2015. $line$$line$Framkvæmdaáætlun er í vinnslu og vill ráðið leggja áherslu á fræðslu og kynningu stefnunnar og innleiðingu hugmyndafræði hennar í alla starfsemi bæjarins. Til þess að svo megi verða telur ráðið nauðsynlegt að fjármagn til málaflokksins verði aukið til muna.
02
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 39. fundur
Halldóra Gunnarsdóttir sérfræðingur í jafnréttismálum hjá Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur kom inná fundin með kynningu um mannréttindastefnu borgarinnar og gerð framkvæmdaáætlunar.$line$$line$Ákveðið að hefja kynningu á jafnréttis- og mannréttindaáætlun fyrir starfsmönnum og efna síðar til vinnufundar með stjórnendum.
03
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 38. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð fór yfir tímaramma og hugmyndir vegna undirbúnings aðgerðaáætlunar og kynningu á jafnréttis- og mannréttindastefnunni.