Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 30. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Ragnheiður Bóasdóttir - aðalfulltrúi
  • Guðrún Hulda Eyþórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Unnur Tryggvadóttir Flóvenz - aðalfulltrúi
  • Amid Derayat - aðalfulltrúi
  • Anný Berglind Thorstensen - varafulltrúi

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Anný Berglind Thorstensen sat fundinn í fjarveru Lárusar Axels Sigurjónssonar.

Dagskrá fundar

01

Jafnréttis- og mannréttindastefna Kópavogs 2014-2018

Vinnufundur

Farið var yfir mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og jafnréttisstefnu Kópavogs. Ákveðið var að fá leyfi til þess að styðjast við mannréttindastefnu borgarinnar sem fyrirmynd að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2015-2018. Formaður ráðsins mun ásamt jafnréttisráðgjafa vinna frumdrög að stefnunni fyrir næsta fund.

02

100 ára kosningaréttur kvenna 2015

Frestað frá síðasta fundi

Ráðið ákveður að sækja um styrk til þess að minnast 100 ára kosningarafmælis kvenna og því að jafnréttisnefnd Kópavogs á 40 ára afmæli á næsta ári.