Jafnréttis- og mannréttindastefna Kópavogs 2015-2018.
Málsnúmer: 1408261
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1115. fundur
Lögð fram til samþykktar jafnréttis- og mannréttindastefna Kópavogs fyrir árin 2015-2018. Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir afgreiðslu jafnréttis- og mannréttindaráðs og samþykkir stefnuna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Theódóra Þorsteinsdóttir mælti fyrir tillögu að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs fyrir árin 2015 - 1018.$line$$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum og samþykkir jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2015-2018.
02
Bæjarráð - 2772. fundur
Lögð fram til samþykktar jafnréttis- og mannréttindastefna Kópavogs fyrir árin 2014-2018. Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu jafnréttis- og mannréttindaráðs og samþykkir stefnuna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 36. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.
04
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 35. fundur
Ráðið ákveður að frumdrög verði nú kynnt fyrir samflokksmönnum ráðsmanna og stjórnendum bæjarins. Frestur til að skila athugasemdum verður til 10. apríl nk.
05
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 34. fundur
Kaflar verða sendir til yfirlestrar og gefinn frestur til 4. mars til að skila athugasemdum. Stefnt er að því að stefnan verði tilbúin til kynningar eftir næsta fund ráðsins þann 18. mars n.k.
06
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 33. fundur
Farið yfir drög.$line$Lokahönd lögð á stefnuna á næsta fundi.
07
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 32. fundur
Ráðið fór yfir fyrstu drög.
08
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 31. fundur
Lögð fram frumdrög að jafnréttis- og mannréttindarstefnu til kynningar og umræðu.
09
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 30. fundur
Vinnufundur
Farið var yfir mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og jafnréttisstefnu Kópavogs. Ákveðið var að fá leyfi til þess að styðjast við mannréttindastefnu borgarinnar sem fyrirmynd að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2015-2018. Formaður ráðsins mun ásamt jafnréttisráðgjafa vinna frumdrög að stefnunni fyrir næsta fund.
10
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 29. fundur
Frestað fram til næsta fundar 29. október n.k. Formaður sendir upplýsingar um gögn sem gott er að kynna sér fyrir fundinn.
11
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 28. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð mun fyrir næsta fund kynna sér jafnréttis- og mannréttindastefnu annarra sveitafélaga s.s. mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. $line$$line$Haft verður samráð við aðrar nefndir og svið bæjarins um þau málefni sem sett verða á oddinn í aðgerðaráætlun ráðsins.$line$$line$Jafnréttis- og mannréttindaráð beinir því til bæjarstjórnar að í tengslum við endurskoðun jafnréttis- og mannréttindastefnu bæjarins verði horft til þess að auka stöðugildi jafnréttisráðgjafa og endurskoða starfslýsingu hans.
12
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 27. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð mun hefja vinnu við gerð nýrrar stefnu sem á að taka bæði til jafnréttis- og mannréttis.