Til baka í nefndaryfirlit
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 78. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Sær Ragnarsson - formaður
- Valdís Gunnarsdóttir Þormar - aðalmaður
- Soumia I. Georgsdóttir - aðalmaður
- Ásmundur Alma Guðjónsson - aðalmaður
- Jón Magnús Guðjónsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Almenn mál - umsagnir og vísanir
Sjá aðgerð 14 - yfirferð jafnréttisáætlunar
Jafnréttis- og mannréttindaráð fór yfir jafnréttisáætlun með hliðsjón af ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og telur áætlunina samræmast Sáttmálanum enda var við gerð áætlunarinnar höfð hliðsjón af Barnasáttmálanum.
Sérstakur kafli í jafnréttisáætluninni fjallar um Barnasáttmálann og innleiðingu hans.
Almenn mál
Jafnréttisráðgjafa ef falið að auglýsa eftir tilnefningum.
Almenn mál
Jafnréttisráðgjafa er falið að auglýsa eftir styrkumsóknum.
Almenn mál
Umræða um kynningu og útgáfu
Jafnréttisráðgjafa er falið að láta útbúa rafrænt kynningarefni í samráði við almannatengil bæjarins og að sjá til þess að allir starfsmenn bæjarins fái kynningarefnið sent.