Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Jafnréttisáætlun Kópavogs 2018-2022

Málsnúmer: 1811071

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 78. fundur

Umræða um kynningu og útgáfu

Jafnréttisráðgjafa er falið að láta útbúa rafrænt kynningarefni í samráði við almannatengil bæjarins og að sjá til þess að allir starfsmenn bæjarins fái kynningarefnið sent.

02

Bæjarstjórn - 1209. fundur

Frá jafnréttisráðgjafa, lögð fram jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar ásamt aðgerðaáætlun. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 16. janúar.

Bæjarstjórn samþykkir jafnréttisáætlun, ásamt aðgerðaráætlun með 1l atkvæðum.

Bókun:

Undirritaðir fagna að jafnréttisáætlun sé komin fram.

Í aðgerðaráætlun, verkefni nr. 12 er gert ráð fyrir að “Við úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum og uppsagnir skal þess gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað eftir kyni. Hér er mikilvægt að bæta við , trúarbragða, uppruna, aldurs o.s.frv.

Við verkefni nr. 18 þá þarf að taka tillit til bæði starfsmanna og nemenda þannig að setningin verði "Gera viðhorfskönnun meðal starfsmanna og nemenda á því hvort það telji brotið á sér.."



Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

Elvar Páll Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

03

Bæjarráð - 2987. fundur

Frá jafnréttisráðgjafa, lögð fram jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar ásamt aðgerðaáætlun. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 16. janúar.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Bæjarráð - 2985. fundur

Frá jafnréttisráðgjafa, lögð fram jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar ásamt aðgerðaáætlun.

Bæjarráð frestar málinu.

05

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 75. fundur

Yfirferð yfir athugasemdir og umsagnir um jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar og aðgerðaráætlun lokið.

Jafnréttisráðgjafa er falið að leggja áætlanirnar fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til samþykktar.

06

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 74. fundur

Farið yfir umsagnir sem borist höfðu.

07

Íþróttaráð - 97. fundur

Drög að Jafnréttisáætlun Kópavogs 2018-2022 voru lögð fram til kynningar á 95.fundi ráðsins og frestað.

Íþróttaráð leggur til að deildarstjóra íþróttadeildar og sviðsstjóra menntasviðs verði falið að yfirfara jafnréttisáætlun, m.t.t. þeirra ábendinga sem fram koma frá nefndarmönnum og skila umsögn um áætlunina.

08

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 73. fundur

Lagðar fram umsagnir. Skipulagður vinnufundur þann 11. desember nk.

Jafnréttis- og mannréttindaráð beinir því til þeirra nefnda og ráða sem enn hafi ekki skilað umsögn að gera það eigi síðar en 6. desember nk.

09

Ungmennaráð - 13. fundur

Óskað eftir umsögn jafnréttis- og mannréttindaáætlun bæjarins.

Nefndarmenn munu koma athugasemdum og ábendingum við áætlunina til starfsmanns ungmennaráðs, sem skilar þeim sameinuðum til starfsmanns jafnréttis- og mannréttindaráðs.

Theódóra Þorsteinsdóttir fer af fundi kl. 19:28.

10

Leikskólanefnd - 113. fundur

Lögð fram.

Gunnar Sær Ragnarsson kynnti jafnréttisáætlun Kópavogsbæjars fyrir nefndarmönnum. Leikskólanefnd leggur til að deildarstjóra leikskóladeildar og sviðsstjóra menntasviðs verði falið að yfirfara jafnréttisáætlun m.t,t, þeirra ábendinga sem fram koma frá nefndarmönnum og skila umsögn um áætlunina.

11

Lista- og menningarráð - 106. fundur

Drög að jafnréttisáætlun Kópavogs lögð fram til kynningar

Lista- og menningarráð felur forstöðumanni menningarmála að taka við athugasemdum og koma til jafnréttis- og mannréttindaráðs.

12

Barnaverndarnefnd - 97. fundur

Lagt fram til kynningar.

13

Öldungaráð - 10. fundur

Óskað eftir umsögn um jafnréttis- og mannréttindaáætlun bæjarins.

Lagt fram.

Nefndarmenn munu koma athugasemdum og ábendingum við áætlunina til starfsmanna öldungaráðs, sem skila þeim sameinuðum til jafnréttis- og mannréttindanefndar fyrir hönd ráðsins.

14

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 2. fundur

Starfsmanni er falið að taka á móti ábendingum sem berast og skila þeim inn í vinnu jafréttusáætlunar Kópavogsbæjar.

Ábendingar nefndarmanna þurfa að berast innan tveggja vikna frá dagsetningu þessa fundar.

15

Menntaráð - 51. fundur

Máli frestað á fundi menntaráðs þann 1. október 2019.

Menntaráð leggur til að deildarstjóra grunnskóladeildar og sviðsstjóra menntasviðs verði falið að yfirfara jafnréttisáætlun, m.t.t. þeirra ábendinga sem fram koma frá nefndarmönnum og skila umsögn um áætlunina.

16

Velferðarráð - 52. fundur

Lagt fram til umsagnar

Vísað til umsagnar notendaráðs fatlaðs fólks og öldungaráðs.

17

Umhverfis- og samgöngunefnd - 119. fundur

Á fjögurra ára fresti er jafnréttis- og mannréttindaáætlun bæjarins endurskoðuð.

Bæjarráð hefur fengið áætlunina til umfjöllunar og vísað henni áfram til umsagnar nefnda og ráða.

Frestur er til 21. október nk. til að skila umsögnum.

Lagt fram og kynnt.

18

Velferðarráð - 51. fundur

Drög að jafnréttis- og mannréttindaáætlun sem og aðgerðarlisti lögð fram til umsagnar.

Afgreiðslu frestað.

19

Skipulagsráð - 59. fundur

Lögð fram drög að jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar 2018-2022 ásamt aðgerðalista.

Lagt fram.

20

Íþróttaráð - 95. fundur

Lögð fram til kynningar, drög að jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar 2018-2022 sem bæjarráð vísar til umsagnar íþróttaráðs. Endurskoðun hennar fer fram á fjögurra ára fresti..

Lagt fram til kynningar. Máli frestað

21

Menntaráð - 48. fundur

Bæjarráð vísar drögum að jafnréttis- og mannréttindaáætlun til umsagnar í menntaráð. Endurskoðun hennar fer fram á fjögurra ára fresti.

Máli frestað.

22

Bæjarráð - 2968. fundur

Lögð fram drög að jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar ásamt aðgerðalista.

Bæjarráð staðfestir tillögu jafnréttis- og mannréttindaráðs.

23

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 72. fundur

Lögð fram drög að jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar ásamt aðgerðalista.

Jafnréttis- og mannréttindaráð felur jafnréttisráðgjafa að senda drög að jafnréttisáætlun til umsagnar.

24

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 71. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð felur jafnréttisráðgjafa að fullvinna lokadrög að jafnréttisáætlun og senda til umsagnar.

25

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 70. fundur

Áframhaldandi vinna að jafnréttisáætlun.

26

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 69. fundur

Unnið áfram að jafnréttisáætlun.

Jafnréttisráðgjafa er falið að óska eftir viðbótafresti frá Jafnréttisstofu til að skila jafnréttisáætlun.

27

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 68. fundur

Áframhaldandi vinna við jafnréttisáætlun.


Hákon Helgi Leifsson vék af fundi kl. 17:30

28

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 67. fundur

Unnið að gerð jafnréttisáætlunar.

29

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 66. fundur

Áframhaldandi vinna að mótun jafnréttisáætlun. Ráðið ákveður að halda sérstakan vinnufund í febrúar.

30

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 65. fundur

Áframhaldandi vinna að jafnréttisáætlun Kópavogs.

31

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 64. fundur

Ráðið fór yfir jafnréttislög og Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna vegna vinnu við nýja jafnréttisáætlun.