Jafnréttis- og mannréttindaráð - 88. fundur
á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Heiðdís Geirsdóttir - aðalmaður
- Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hildur María Friðriksdóttir - aðalmaður
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður
- Auður Kolbrá Birgisdóttir - starfsmaður nefndar
- Margrét Pála Ólafsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Auður Kolbrá Birgidsóttir
Dagskrá fundar
Heiðdís Geirsdóttir einróma kosin formaður ráðsins og Sigrún Bjarnadóttir varaformaður jafnframt einróma.
Bæjarlögmaður kynnir störf og reglur nefnda og ráða hjá bænum.
Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum frá viðeigandi sviðum, þ.m.t. velferðarsviði, stjórnsýslusviði og menntasviði, um hvernig Kópavogsbær hefur staðið að móttöku flóttamanna frá Úkraínu og hvort bærinn sé með yfirlýsta stefnu í málaflokknum.
Fulltrúi Vina Kópavogs bendir á að Kópavogsbær virðist ekki vera með styrktarsamning við Samtökin 78 en samtökin veita mikla fræðslu í bæði skóla og til starfsmanna bæjarins. Félagsmiðstöð fyrir hinsegin börn og ungmenni er rekin af samtökunum en börn, ungmenni og foreldrar sem búa í Kópavogsbæ njóta þjónustu félagsmiðstöðvarinnar.