Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Jafnréttis- og mannréttindaráð - Fyrirspurnir

Málsnúmer: 2208460

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 107. fundur

Svar velferðarsviðs við fyrirspurn jafnréttis- og mannréttindaráðs frá 106. fundi lagt fram.

Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar fyrir svarið.

02

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 106. fundur

Erindi frá Indriða I. Stefánssyni:

Í ljósi fyrra erindis um áhrif eineltisstefnu og nýlegra frétta um eineltismál óska ég eftir umfjöllun um eftirfylgni eineltismála og hversu vel stefnunni er fylgt.

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir kynningu frá Menntasviði um verklag og framkvæmd eineltisáætlana í grunnskólum sveitarfélagsins.

03

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 106. fundur

Erindi frá Ragnari Guðmundssyni er í fylgiskjali.

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir kynningu frá fulltrúum Kópavogsbæjar á sviði upplýsingatækni og persónuverndar um þær reglur sem gilda um notkun nemenda á tækjum og hugbúnaði í eigu skólanna.

Jafnframt er óskað eftir kynningum á meðferð upplýsinga er varðar persónuleg málefni íbúa bæjarins.

Þá óskar jafnréttis- og mannréttindaráð eftir upplýsingum frá Menntasviði um hvaða reglur gilda um heimildir sjálfstæðra félagasamtaka til að vera með kynningu/fræðslu í grunnskólum bæjarins. Einnig hvort að hægt sé að afla upplýsinga um efni frá sjálfstæðum félagasamtökum sem hefur verið notað í fræðslu.

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um hvort Kópavogsbær er með áætlun gegn kynbundnu ofbeldi eða hyggst taka hana upp. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvernig forvarnarstarfi hvaða áætlun Kópavogsbær hefur í forvarnarstarfi gegn kynbundnu ofbeldi.

Upplýsingar um tölfræði sem óskað var eftir í fyrirspurn er að finna á eftirfarandi síðu: https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2024/03/Kynferdisbrot-Aukaadild-og-sakb.-fyrir-ytri-vef-2023-16.02.2024.pdf


04

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 98. fundur

Lagt fram svar mannauðsstjóra við fyrirspurn jafnréttis- og mannréttindaráðs frá 9. nóvember 2023.

Lagt fram.

05

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 94. fundur

Lagt fram svar sviðsstjóri velferðarsviðs við fyrirspurn ráðsins um móttöku flóttafólks frá Úkraínu.

Lagt fram.

06

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 91. fundur

Tillaga Indriða Inga Stefánssonar ráðsfulltrúa um greiningu á eineltismálum.

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum frá sviðsstjóra menntasviðs um stöðu eineltismála hjá skólum bæjarins, þróun í Skólapúlsi sl. 5 ár og þá hvernig Kópavogsbær stendur í samanburði við önnur sveitarfélög.

Jafnframt óskar ráðið eftir upplýsingum frá mannauðsstjóra Kópavogsbæjar um eineltismál starfsmanna og eineltisstefnu. Hvort og hvernig haldið sé utan um tölfræði í kringum þau mál.

07

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 88. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum frá viðeigandi sviðum, þ.m.t. velferðarsviði, stjórnsýslusviði og menntasviði, um hvernig Kópavogsbær hefur staðið að móttöku flóttamanna frá Úkraínu og hvort bærinn sé með yfirlýsta stefnu í málaflokknum.