Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 87. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Sær Ragnarsson - formaður
  • Valdís Gunnarsdóttir Þormar - aðalmaður
  • Soumia I. Georgsdóttir - aðalmaður
  • Ásmundur Alma Guðjónsson - aðalmaður
  • Björn Þór Rögnvaldsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Auður Kolbrá Birgisdóttir - lögfræðingur

Ritari

  • Auður Kolbrá Birgidsóttir

Dagskrá fundar

01

Stefna um málefni innflytjenda

Áframhaldandi vinna að stefnu í málefnum fólks af erlendum uppruna.

02

Fyrirspurn jafnréttis- og mannréttindaráðs til innkaupadeildar

Lagt fram svar innkaupadeildar við fyrirspurn ráðsins.

03

Fyrirspurn til menntasviðs

Svar Menntasviðs við fyrirspurn ráðsins

Jafnréttis- og mannréttindaráð ítrekar mikilvægi þessi að leik- og grunnskólar Kópavogsbæjar miðli upplýsingum á fleiri tungumálum en einungis íslensku. Samkvæmt svari má ráða að langt sé í land. Jafnréttis- og mannréttindaráð vill benda á nauðsyn þess að öll upplýsingagjöf sé aðgengileg öllum bæjarbúum óháð íslenskukunnáttu.

Sem dæmi má nefna að aðeins fjórir af tíu grunnskólum eru með enska þýðingu eða þýðingu á fleiri tungumálum á vefsíðu sinni. Það er ákallandi að allir skólar bæjarins bjóði upp á slíka þýðingu á sinni vefsíðu, a.m.k. enska þýðingu. Nauðsynlegt er að slík þýðing sé yfirfarin af einstaklingi með full völd á viðkomandi tungumáli.