Fyrirspurn til menntasviðs
Málsnúmer: 1104028
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 87. fundur
Svar Menntasviðs við fyrirspurn ráðsins
Jafnréttis- og mannréttindaráð ítrekar mikilvægi þessi að leik- og grunnskólar Kópavogsbæjar miðli upplýsingum á fleiri tungumálum en einungis íslensku. Samkvæmt svari má ráða að langt sé í land. Jafnréttis- og mannréttindaráð vill benda á nauðsyn þess að öll upplýsingagjöf sé aðgengileg öllum bæjarbúum óháð íslenskukunnáttu.
Sem dæmi má nefna að aðeins fjórir af tíu grunnskólum eru með enska þýðingu eða þýðingu á fleiri tungumálum á vefsíðu sinni. Það er ákallandi að allir skólar bæjarins bjóði upp á slíka þýðingu á sinni vefsíðu, a.m.k. enska þýðingu. Nauðsynlegt er að slík þýðing sé yfirfarin af einstaklingi með full völd á viðkomandi tungumáli.
02
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 84. fundur
Fyrirspurn til menntasviðs Kópavogs
Jafnréttis- og mannréttindaráð leggur eftirfarandi fyrirspurn til leik- og grunnskóla Kópavogs:
Veitir skólinn alla sína upplýsingagjöf á fleiri tungumálun en íslensku, þ.e. ensku og þriðja tungumáli? Með upplýsingagjöf er átt við allt efni sem kemur frá skólanum. Færslur á samfélagsmiðlum, heimasíðu, póstar frá skólanum, skólastjórnendum og umsjónakennurum og allt annað sem getur fallið undir sem samskipti og upplýsingagjöf frá skólanum.
Á hvaða tungumálum er upplýsingagjöfin veitt?
Ef svo er ekki, þá er spurt hvaða upplýsingagjöf er veitt á fleiri tungumálum en íslensku ef einhverjum, og á hvaða tungumálum?
03
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 84. fundur
Fyrirspurn til mannauðsstjóra
Liggja fyrir upplýsingar og tölfræði um hversu margir starfsmenn bæjarins eru af erlendum uppruna? Þá er óskað eftir sundurliðun tölfræðinnar eftir starfsheitum.
Einnig er óskað eftir upplýsingum um hlutfall atvinnuleitenda búsetta í Kópavogi sem eru af erlendum uppruna.
04
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 76. fundur
Óskað eftir að persónuverndarfulltrúi Kópavogsbæjar mæti til næsta fundar þann 2. apríl nk.
05
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 68. fundur
Ráðið felur jafnréttisráðgjafa að senda fyrirspurnir á viðeigandi aðila innan stjórnkerfisins um:
Stöðu á innleiðingu Jafnlaunavottunar.
Einelti í skólum - tölulegar upplýsingar.
Stöðu á þýðingu á texta heimasíðu Kópavogsbæjar yfir á ensku.
Einstaklingsklefar í íþróttamannvirkjum.
Viðbragðsáætlanir vegna eineltis og áreitis.
Ítreka fyrirspurn um heimsóknir leik- og grunnskólabarna til trúar- og lífsskoðunarfélaga.
06
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 48. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð beinir því til bæjarstjórnar við gerð næstu fjárhagsáætlunar að hækka styrkupphæð sem ráðið hefur til úthlutunar í 1.200.000 kr. þar sem hafna þarf mörgum verðugum verkefnum.
07
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 36. fundur
Jafnréttis- og mannréttindarað skorar á bæjaryfirvöld að fara að tilmælum ríkisstjórnar um að veita starfsfólki frí frá hádegi 19. júní nk.
08
Bæjarráð - 2643. fundur
Jafnréttis- og mannréttindanefnd hvetur bæjarstjórn til þess að ráða jafnréttis- og mannréttindafulltrúa í fullt starf, sbr. lið 5 í fundargerð nefndarinnar frá 23/5.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
09
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 12. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð hvetur bæjarstjórn til þess að ráða jafnréttis- og mannréttindafulltrúa í fullt starf sem fylgi eftir jafnréttisstefnu bæjarins og gæti að mannréttindum Kópavogsbúa.
10
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 6. fundur

Jafnréttis- og mannréttindanefnd mun beita sér fyrir því að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði gert ráð fyrir framlagi til fræðslu um jafnréttismál og fræðslu og innleiðingu aðgerðaáætlana um einelti og kynbundið ofbeldi. Þá minnir nefndin á að skv. jafnréttisáætlun bæjarins skal láta gera könnun á launamun kynja hjá starfsmönnum Kópavogsbæjar og könnun eða gátlista fyrir stjórnendur æskulýðsstarfs árið 2012.

11
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 3. fundur

Jafnréttis- og mannréttindanefnd telur brýnt að herða eftirlit með framkvæmd laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Nefndin felur jafnréttisráðgjafa að afla upplýsinga um fjölda og staðsetningu vinveitingastaða í Kópavogi. Þá er jafnréttisráðgjafa falið að óska upplýsinga frá lögreglu um starfsemi vínveitingastaða í bænum og hvernig eftirliti með stöðunum er háttað. Jafnréttisráðgjafa er falið að senda vínveitingastöðum afrit af bókun nefndarinnar til upplýsinga.

12
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 1. fundur

Nefndin ákveður að næsti fundur nefndarinar skuli vera 5. maí nk. kl. 16:15.