Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 111. fundur

í Vallakór 4

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Heiðdís Geirsdóttir - formaður
  • Hildur María Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
  • Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
  • Ragnar Guðmundsson - aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Helga G. Halldórsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karítas Eik Sandholt - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Karítas Eik Sandholt

Dagskrá fundar

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - önnur mál

Heimsókn og kynning á starfsstöð velferðarsviðs Kópavogsbæjar.

02

Styrkur jafnréttis- og mannréttindaráðs 2025

Farið yfir tilnefningar til styrks og viðurkenninga jafnréttis- og mannréttindaráðs fyrir árið 2025.

Ákvörðun tekin um ráðstöfun styrks og að veittar verða viðurkenningar til einstaklings og félagasamtaka sem hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttis- og mannréttindamála.

03

Fyrirspurn Hildar Maríu Friðriksdóttur nefndarfulltrúa jafnréttis- og mannréttindaráðs um úttekt á aðgengi og stuðningi við eldri borgara og annarra viðkvæmra hópa við notkun stafrænnar þjónustu

Erindi frá nefndarmanni Samfylkingarinnar:

Í ljósi þess að stór hluti samskipta við hið opinbera fer fram í gegnum stafræn kerfi, er nauðsynlegt að kanna hvort eldri borgarar og aðrir viðkvæmir hópar njóti jafns réttar skv. jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og mannréttindasáttmála, sem og skv. skyldu sveitarfélaga til að tryggja aðgengi og lífsgæði í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Óskað er eftir að Kópavogsbær geri úttekt á aðgengi og stuðningi við þessa hópa þegar kemur að notkun stafrænnar þjónustu.

Jafnréttis- og mannréttindaráð fer þess á leit við Kópavogsbæ að gerð verði úttekt á aðgengi og stuðningi við eldri borgara og aðra hópa sem þurfa á tæknistuðningi að halda.

04

Erindi frá Indriða I. Stefánssyni vegna áhrifa eineltisstefnu og umfjöllun um eftirfylgni eineltismála

Kynning frá menntasviði um verklag og framkvæmd eineltisáætlana í grunnskólum sveitarfélagsins.

Frestað til næsta fundar