Fyrirspurn nefndarfulltrúa jafnréttis- og mannréttindaráðs um úttekt á aðgengi og stuðningi við eldri borgara og annarra viðkvæmra hópa við notkun stafrænnar þjónustu
Málsnúmer: 24112572
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3212. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 9.1.2025 var fjallað um fyrirspurn frá nefndarmanni Samfylkingar í jafnréttis- og mannréttindaráði um úttekt á aðgengi og stuðningi við eldri borgara og aðra viðkvæma hópa við notkun stafrænnar þjónustu. Málið var tekið til umræðu í bæjarráði að beiðni Bergljótar Kristinsdóttur bæjarfulltrúa Samfylkingar. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs. Nú lögð fram umsögn velferðarsviðs dags. 03.04.2025.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3200. fundur
Frá bæjarfulltrúa Bergljótu Kristinsdóttir, ósk um að fá mál frá 111. fundi jafnréttis- og mannréttindaráðs á dagskrá bæjarráðs er snýr að úttekt á og stuðningi við eldri borgara og annarra viðkvæmra hópa við notkun stafrænnar þjónustu.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs.
03
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 111. fundur
Erindi frá nefndarmanni Samfylkingarinnar:
Í ljósi þess að stór hluti samskipta við hið opinbera fer fram í gegnum stafræn kerfi, er nauðsynlegt að kanna hvort eldri borgarar og aðrir viðkvæmir hópar njóti jafns réttar skv. jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og mannréttindasáttmála, sem og skv. skyldu sveitarfélaga til að tryggja aðgengi og lífsgæði í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Óskað er eftir að Kópavogsbær geri úttekt á aðgengi og stuðningi við þessa hópa þegar kemur að notkun stafrænnar þjónustu.
Jafnréttis- og mannréttindaráð fer þess á leit við Kópavogsbæ að gerð verði úttekt á aðgengi og stuðningi við eldri borgara og aðra hópa sem þurfa á tæknistuðningi að halda.