Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 79. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Sær Ragnarsson - formaður
  • Valdís Gunnarsdóttir Þormar - aðalmaður
  • Davíð Snær Jónsson - aðalmaður
  • Soumia I. Georgsdóttir - aðalmaður
  • Ásmundur Alma Guðjónsson - aðalmaður
  • Jón Magnús Guðjónsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Umsókn um styrk frá jafnréttis- og mannréttindaráði. Lýðræðisleg þáttaka nemenda

Umsókn frá Hörðuvallaskóla vegna verkefnis um lýðræðislegrar þáttöku nemenda.

Jafnréttis og mannréttindaráð sér sig ekki fært að verða við umsókninni að þessu sinni.

Almenn mál

02

Umsókn um styrk frá jafnréttis- og mannréttindaráði. Hinsegin Teymi

Umsókn frá Hinsegin teymi Hörðuvallaskóla

Jafnréttis og mannréttindaráð sér sig ekki fært að verða við umsókninni að þessu sinni.

Almenn mál

03

Umsókn um styrk frá jafnréttis- og mannréttindaráði 2020

Tillaga um að styrkurinn verði veittur Pieta samtökunum.

Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að styrkja samtökin um 400.000 kr.

Almenn mál

04

Umsókn um styrk frá jafnréttis- og mannréttindaráði

Umsókn frá IOGT á Íslandi

Jafnréttis og mannréttindaráð sér sig ekki fært að verða við umsókninni að þessu sinni.

Almenn mál

05

Viðurkenning jafnréttis- og mannréttindaráðs 2020

Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að veita Pieta samtökunum viðurkenningu ársins fyrir framlag sitt til forvarna gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða.

Almenn mál

06

Styrkveitingar jafnréttis- og mannréttindaráðs

Aftur kemur það fyrir að ráðið hefur ekki fjármagn til að styrkja þau verðugu verkefni sem sótt er um að fullu. Því beinir jafnréttis- og mannréttindaráð því aftur til bæjarstjórar þeirri ósk að hækka fjármagn fyrir styrkveitingu ráðsins úr 400.000 kr. í 1.000.000 kr.


Upphæð umrædds styrkjar hefur ekki verið hækkuð í árana raðir, og er það mat ráðsins að tímabært sé að hækka styrkupphæðina þar sem hafna hefur þurft verðugum verkefnum í þágu jafnréttis- og mannréttindamála í Kópavogsbæ. Með þessu myndi Kópavogsbær sýna virðingu fyrir málaflokknum í verki og styðja við framgang jafnréttis- og mannréttindamála í sveitarfélaginu.