Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Styrkveitingar jafnréttis- og mannréttindaráðs

Málsnúmer: 2010565

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 79. fundur

Aftur kemur það fyrir að ráðið hefur ekki fjármagn til að styrkja þau verðugu verkefni sem sótt er um að fullu. Því beinir jafnréttis- og mannréttindaráð því aftur til bæjarstjórar þeirri ósk að hækka fjármagn fyrir styrkveitingu ráðsins úr 400.000 kr. í 1.000.000 kr.


Upphæð umrædds styrkjar hefur ekki verið hækkuð í árana raðir, og er það mat ráðsins að tímabært sé að hækka styrkupphæðina þar sem hafna hefur þurft verðugum verkefnum í þágu jafnréttis- og mannréttindamála í Kópavogsbæ. Með þessu myndi Kópavogsbær sýna virðingu fyrir málaflokknum í verki og styðja við framgang jafnréttis- og mannréttindamála í sveitarfélaginu.